Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
28. febrúar 2012

Vinnufundir ferðaþjónustuaðila standa yfir í London

Góður gangur er í vinnufundum ferðaþjónustuaðila í London þar sem 18 íslensk fyrirtæki funda nú með breskum ferðaskrifstofum.

Markmiðið er að kynna fyrir bresku aðilunum allt það sem Ísland hefur upp á að bjóða, sérstaklega utan háannar. Vinnufundurinn er í samvinnu við ferðamálayfirvöld i Eistlandi og Finnlandi og er haldinn í höfuðstöðvum hins konunglega stórskotaliðs, 'The Honorable Artillery Company.'
Sem fyrr er mikill áhugi á Íslandi og vænta menn enn fleiri breskra ferðamanna nú þegar tvö flugfélög bætast í hóp þeirra sem fljúga milli London og Íslands eða EasyJet og WowAir.

Deila