Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
23. mars 2012

Vinnustofur í Evrópu með seljendum Íslandsferða

Íslandsstofa skipuleggur röð funda í Evrópu með helstu söluaðilum Íslandsferða á hverju markaðssvæði.

Tilgangur fundanna er að koma á framfæri upplýsingum um verkefnið „Ísland allt árið" samhliða því að ræða markaðssetningu á Íslandi á viðkomandi svæði. Íslenskum fyrirtækjum mun gefast kostur á að funda með söluaðilum og kynna vöruframboð sitt veturinn 2012 -2013.

Vinnufundir verða haldnir í eftirfarandi borgum:

17. apríl Frankfurt
18. apríl München
24. apríl Osló
25. apríl Stokkhólmur
26. apríl Kaupmannahöfn
9. maí París
10. maí Amsterdam

Áhugasamir sem ekki hafa þegar staðfest þátttöku eru beðnir að gera það nú þegar.

Nánari upplýsingar um vinnustofur í Skandinavíu veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000

Nánari upplýsingar um vinnustofur í Þýskalandi, París og Amsterdam veitir Davíð Jóhannsson, david@islandsstofa.is eða í síma 545 7828

Deila