Hamingjuóskir frá ráðherra ferðamála
Íslandsstofu barst eftirfarandi orðsending frá Katrínu Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála á Íslandi:
TIL HAMINGJU ... og takk!
Ég óska öllum aðstandendum Inspired by Iceland átaksins til hamingju með gullverðlaun og Grand Prix verðlaun í samkeppni um evrópsku Effie verðlaunin. Íslandsstofa og Íslenska auglýsingastofan tóku á móti verðlaununum í Brussel í gær fyrir árangursríkustu auglýsingaherferð ársins 2010 og áhrifamestu notkun á samfélagsmiðlum. Breska almanntengsla- og auglýsingastofan Brooklyn Brothers, sem var samstarfsaðili í verkefninu, var valin besta auglýsingastofa Evrópu fyrir þátt sinn í Inspired by Iceland.
Þetta er mikil viðurkenning til fjölmargra samstarfsaðila, sem áttu hlut að Inspired by Iceland, til iðnaðarráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Icelandair, Iceland Express og yfir 90 fyrirtækja og markaðsstofa í ferðaþjónustu sem tóku þátt í því. Einnig á auglýsingastofan Fíton sérstakar þakkir skildar fyrir vinsælt myndband og mörg önnur miðlunarfyrirtæki fyrir framúrskarandi fagmennsku.
Þá vil ég færa almenningi á Íslandi sérstakar þakkir fyrir sinn virka þátt í átakinu. Niðurstaðan er ekki eingöngu sú að það tókst með eftirminnilegum hætti að bjarga ferðasumrinu 2010 eftir truflun á flugsamgöngum í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli. Átakið hefur einnig átt stóran þátt í gríðarlegri fjölgun ferðamanna á árinu 2011 – Íslandsmetið verður örugglega slegið! Við munum síðan byggja á grunni Inspired by Iceland þegar við hefjum nýja markaðssókn sem beinist að því að fjölga ferðamönnum utan hins hefðbundna sumartíma.
Það eru spennandi og „inspired“ tímar framundan!
Katrín Júlíusdóttir
ferðamálaráðherra