Ísland tekur þátt í norrænni matarhátíð í New York
NORTH er Norræn matarhátíð sem haldin er í New York dagana 23.-29. september. Íslandsdagur verður 26. september og er dagskráin fjölbreytt. Boðið er upp á íslenskar veitingar í mat og drykk, fyrirlestra og tónlistaratriði. Pop-up veitingastaður verður settur upp á Scandic Haymarket Square í New York þar sem boðið er upp á dögurð og kvöldverð. Þráinn Vigfússon matreiðslumeistari sér um eldamennskuna og töfrar fram girnilega rétti úr íslensku hráefni sem kynnt er á matarhátíðinni. Meðal rétta á matseðlinum er humar, grafinn lax, lambakjöt og skyr.
Nánari upplýsingar um NORTH má lesa á vef Iceland Natuarlly.