Kaupstefnur í Kanada í október
Viðskiptafulltrúi Íslands í Norður Ameríku og Íslandsstofa, í samstarfi við sendiráð Íslands í Kanada, standa að kaupstefnum í Edmonton, Calgary og Halifax í Kanada 20.- 24. október nk.
Framleiðendum og útflytjendum sjávarafurða á Íslandi verður þar boðin þjónusta og aðstoð við kynningarstarf með það að markmiði að koma á viðskiptasamböndum í Kanada. Verkefnið er unnið undir heitinu „Fresh or Frozen Fresh – Sourcing from Iceland“.
Í hverri borg verður haldin stutt kynning á íslenskum sjávarútvegi og að því loknu munu íslensk fyrirtæki hitta erlenda kaupendur. Hákon Már Örvarsson matreiðslumeistari verður með í för og mun hann bjóða upp á íslenskar sjávarafurðir í móttöku í lok hvers fundar.
Kostnaður við þátttöku er áætlaður milli 150-180.000 kr. á fyrirtæki og fer eftir fjölda þátttakenda. Sjá nánari upplýsingar.
Frekari upplýsingar veita:
- Hlynur Guðjónsson, viðskiptafulltrúi í New York, hlynur@mfa.is eða í síma 545 7766 og
- Björgvin Þór Björgvinsson, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, bjorgvin@islandsstofa.is eða í síma 511 4000
- Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.