Spennandi starfsnám í boði hjá Íslandsstofu
Helstu verkefni og ábyrgð
Markmið starfsnámsins er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn og vill afla sér reynslu, færi á að kynnast því fjölbreytta starfi sem unnið er í alþjóðlegri markaðssetningu hjá Íslandsstofu.
Um er að ræða sjö mánaða tímabil frá júní og fram í desember 2018. Um fullt starfsnám er að ræða yfir sumarið en síðan um 40% starfshlutfall sem hentar vel með námi.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að vera í BS/BA- eða meistaranámi í grein sem tengist störfum Íslandsstofu á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina
- Áhugi á fjölmiðlum, almannatengslum eða alþjóðlegri markaðssetningu æskilegur
- Góð kunnátta í ensku og íslensku - önnur tungumálakunnátta er æskileg
- Góð þekking á Íslandi
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
Upplýsingar
Umsóknum skal skilað rafrænt á starfsnam.islandsstofa.is fyrir 3. apríl 2018.
Nánari upplýsingar veitir Karen Möller Sívertsen, verkefnisstjóri, ferðaþjónustu og skapandi greina, karen@islandsstofa.is