Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa

Markhópar fyrir íslenska ferðaþjónustu

Mikilvægt er að áfangastaðir sem og fyrirtæki skilji hverjir þeirra bestu viðskiptavinir eru, því slík þekking skilar sér margfalt til baka í aukinni samkeppnishæfni með sterkari markaðsáherslum, gæða vörum og betri afkomu. En til að öðlast slíka þekkingu þarf yfirleitt að framkvæma kostnaðarsamar rannsóknir sem er ekki á færi allra til að framkvæma.

Nú er tækifærið!

Nú loksins eiga allir hagsmunaaðilar ferðaþjónustunnar tækifæri á að nálgast slíka þekkingu, án tilkostnaðar, og dýpka skilning sinn á þeim markhópum sem þykja hvað ákjósanlegastir fyrir íslenska ferðaþjónustu ásamt leiðbeiningum um hvernig hægt sé að skerpa betur á markaðssetningunni. Rannsakaðir voru 14.000 ferðamenn á sjö markaðssvæðum (Bandaríkin, Kanada, Bretland, Frakkland, Þýskaland, Sviss og Danmörk) þar sem þeir voru aðgreindir í hópa út frá lífsháttum, persónugerð, neyslu, ferðagildum og hvernig þeir mæta þörfum og markmiðum íslenskrar ferðaþjónustu. Í fyrri hluta þessa skjals eru dregnir fram þrír megin markhópar óháð landamærum og í seinni hluta er hægt að nálgast nánari upplýsingar um hvern markhóp fyrir hvert markaðssvæði.

Gríptu tækifærið og kynntu þér betur þína bestu viðskiptavini!



Sækja skjal á íslensku 

Sækja skjal á  ensku

Um verkefnið

Í október 2016 fékk Íslandsstofa það verkefni frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (ANR) að greina þá markhópa sem þykja hvað ákjósanlegastir fyrir íslenska ferðaþjónustu. Íslandsstofa vann verkefnið í náinni í samvinnu við Háskólann á Bifröst, Háskólann á Akureyri, Rannsóknarmiðstöð ferðamála (RMF) og Stjórnstöð ferðamála. Sá hópur hafði einnig unnið forvinnu á aðferðafræði við greiningu á markhópunum og hægt að finna tvær ítarlegar skýrslur um þá vinnu á heimasíðu rfm.is og bifrost.is.

Markhópagreining fyrir íslenska ferðaþjónustu er liður í því að auka þekkingu á ferðaþjónustu og byggja á traustari grunn undir atvinnugreinina hér á landi. Tilgangur og meginmarkmið verkefnisins er að þróa betri tól og tæki til að stunda hnitmiðaða og skilvirka markaðssetningu íslenskra áfangstaða á erlendum mörkuðum. Fyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar ferðaþjónustunnar geta nýtt sér markhópagreiningu við markaðssetningu og vöruþróun sinni og íslenskir rannsóknaraðilar geta fylgst betur með þróun og ferðahegðun markhópa og hafa aðgang að þeim gögnum sem verkefnið skilar af sér. Síðast en ekki síst er verkefninu ætlað að aðstoða ferðaskipuleggjendur, ferðaþjónustuaðila, markaðsfólki, stoðkerfinu, hinu opinbera og fjárfestum við upplýstari ákvarðanatöku til að auka arðsemi og sjálfbærni Íslands til langstíma.