Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa

Meet in Reykja­vik - Iceland convention bureau

Ráðstefnuborgin Reykjavík

Ráðstefnuborgin Reykjavík eða „Meet in Reykjavík“ var stofnuð árið 2012 að frumkvæði Reykjavíkurborgar, Icelandair Group og Hörpu í þeim tilgangi að styrkja ímynd Íslands og Reykjavíkur sem eftirsóknarverðs áfangastaðar fyrir ráðstefnur, fundi, hvataferðir og alþjóðlega viðburði (MICE) og auka hlutfall þeirra ferðamanna sem koma í þeim tilgangi allan ársins hring. Félagið var sameinað Íslandsstofu árið 2020 og verður framvegis rekið sem sjálfstætt verkefni þar. Verkefnið er unnið í samræmi við leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu, útflutningsstefnu Íslands og ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar.

Ráðstefnuborgin Reykjavík


Samstarfsfyrirtæki

Starfsemi Meet in Reykjavík er opin öllum fyrirtækjum sem hafa hagsmuni af MICE ferðaþjónustu hér á landi og hafa gild starfsleyfi og tryggingar. Skráning og þátttaka í almennu félagsstarfi er gjaldfrjáls en fyrirtæki greiða fyrir þátttöku sértækum verkefnum (s.s. þátttöku á sýningum, söluheimsóknum ofl.

Samstarfsfyrirtæki
Sigurjóna Sverrisdóttir

Sigurjóna Sverrisdóttir

Verkefnastjóri, Meet in Reykjavik. Útflutningur og fjárfestingar .

Sigurjóna Sverrisdóttir

Verkefnastjóri, Meet in Reykjavik. Útflutningur og fjárfestingar