Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa

Vörumerkið Ice­landic

Félagið Icelandic Trademark Holding ehf. (ITH) er eigandi vörumerkjanna Icelandic og Icelandic Seafood. ITH er í eigu íslenska ríkisins en Íslandsstofa hefur umsjón með daglegum rekstri félagins. Icelandic vörumerkið á sér langa, merkilega og farsæla sögu um hágæða íslenskar sjávarafurðir.

Icelandic vörumerkið stendur fyrir gæði og íslenskan uppruna og undir vörumerkinu hefur verið byggð upp áratugalöng þekking og dýrmæt tengsl við markaðssetningu sjávarafurða erlendis.

Stefna Icelandic Trademark Holding ehf. (ITH) er að Icelandic vörumerkið stuðli að því að auka verðmæti og auðvelda markaðsaðgengi íslenskra sjávarafurða á erlendum mörkuðum á grundvelli gæða, sjálfbærni og uppruna. Ávinningur af rekstri ITH skal renna til þess að styrkja Icelandic vörumerkið og almenna ímyndaruppbyggingu íslensks sjávarfangs.

Sjá nánar á vef Icelandic.com