Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa

Heim­s­torg Ís­lands­stofu


Heimstorg Íslandsstofu er ný upplýsinga- og samskiptagátt fyrirtækja sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum og víðar. 

Heimstorgið er vettvangur þar sem atvinnulíf og stjórnvöld mætast og fyrirtæki geta sótt upplýsingar um mögulegan stuðning við atvinnuþróunarverkefni í þróunarlöndum og víðar þar sem Ísland veitir fjárframlög. Þangað verður einnig hægt að sækja sérþekkingu, stuðning og leiðbeiningar um möguleika á að hrinda hugmyndum í framkvæmd.

Íslandsstofa hefur umsjón með rekstri Heimstorgsins á grundvelli þjónustusamnings við utanríkisráðuneytið. Í baklandi verkefnisins verða sérfræðingar utanríkisráðuneytisins um atvinnulíf og þróunarsamvinnu, viðskiptaþjónustu, uppbyggingarsjóðir í Evrópu, þ.m.t. uppbyggingarsjóð EES, auk annarra samstarfssjóða milli stjórnvalda og atvinnulífs sem íslensk fyrirtæki hafa aðgang að. Jafnframt koma sérfræðingar annarra ráðuneyta og tengiliðir um fjölþjóðlegar fjármögnunarstofnanir að þessu verkefni.

Á Heimstorginu verður haldið utan um þær leiðir sem fyrirtæki hafa til að njóta þjónustu og leiðsagnar hjá utanríkisþjónustunni, Stjórnarráðinu og eftir atvikum öðrum fyrirtækjum sem starfað hafa á svipuðum mörkuðum og stefnan er sett á. Þá verður hægt að sækja góð ráð til starfsmanna verkefnisins um hvernig er farsælast að sækja um styrki til valinna verkefna.

Heimstorgið var formlega opnað 3. mars 2021 og var verkefnið kynnt í beinni útsendingu frá Hörpu. 

Sjá nánar á vefnum Heimstorg.is