Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa




Bacalao de islandia

SALTAÐAR ÞORSKAF­URÐIR FRÁ ÍS­LANDI í suður-evr­ópu

Markaðsstarf í Suður Evrópu

Íslenskur saltfiskur hefur lengi notið vinsælda í Suður-Evrópu. Bacalao de Islandia er markaðsverkefni sem Íslandsstofa og Íslenskir saltfiskframleiðendur (ÍSF) höfðu frumkvæði að árið 2013 til kynningar á söltuðum þorskafurðum á Spáni, Portúgal og Ítalíu, og hefur fest sig í sessi síðan. Frá og með 2019 er þetta verkefni hluti af Seafood from Iceland. Ávinningur af þessu markaðssamstarfi felst í meiri slagkrafti í kynningu og samhæfingu aðila á markaði í harðnandi samkeppni.
Nánar um Seafood from Iceland



Tilgangur og markmið

Tilgangur verkefnisins er að bæta samkeppnisstöðu og auka útflutningsverðmæti saltaðra þorskafurða frá Íslandi. Markmiðið er að vekja athygli á íslenskum uppruna og sérstöðu sem tengist gæðum og hreinleika og efla þannig orðspor og ímynd íslensks saltfisks enn frekar í huga kaupenda og festa í sessi núverandi og nýja neytendur.

Tilgangur og markmið


Kynn­ing­ar­starfið

Fjöldi íslenskra fyrirtækja með mikla reynslu og þekkingu á framleiðslu, sölu og markaðssetningu íslenskra saltfiskafurða taka þátt í verkefninu. Fyrirtækin taka ríkan þátt í mótun á áherslum og val á markaðsaðgerðum. Slagorð verkefnisins er „Smakkaðu og deildu leyndarmálum íslenska þorsksins" og er lögð áhersla á gæði, ferskleika og ábyrgar fiskveiða í allri kynningu. 

Undanfarin ár hefur áhersla verið lögð á eftirtaldar aðgerðir:


Matreiðsluskólar

Síðan 2015 hefur þróast samstarf með matreiðsluskólum, enda um mikilvægan hóp að ræða. Íslenskur saltfiskur þannig verið kynntur fyrir upprennandi kokkum í hverju landi fyrir sig, með aðstoð þarlendra meistarakokka. Fram hafa farið kynningar, keppnir og jafnvel heimsóknir til Íslands.

Matreiðsluskólar

Samstarfs við matreiðslumenn

Verkefnið á sér öfluga málsvarsmenn á öllum mörkuðum, matreiðslumenn sem hafa komið að kynningum fyrir verkefnið á ýmsum vettvangi í gegnum árin. Þetta eru kokkar sem þekkja afurðina og upprunann, auk grunnskilaboða verkefnis. Þeir hafa einnig lagt til uppskriftir sem nýtast þeim sem vilja prófa sig áfram með heimaeldamennsku.

Samstarfs við matreiðslumenn


Kynningarsamstarf

Bacalao de Islandia leitast við að vinna með aðilum sem hafa áhuga á að kynna íslenskan uppruna fyrir viðskiptavinum sínum úti á mörkuðum. Sem dæmi um þetta má nefna Ruta del Bacalao í Barcelona, sem er árlegur viðburður þar sem íslenskur saltfiskur er paraður með DAMM Inedit bjór á veitingastöðum í Barcelona á háneyslutíma, í nánd við páska.

Kynningarsamstarf


Vef­ir og sam­fé­lags­miðlar

Á samfélagsmiðlum hefur skapast öflugur vettvangur þar er áherslan á að segja söguna á bakvið leyndarmál íslenska þorskins: sjávarþorpið. Þar vinna allir saman að því að skapa þessa gæðavöru, sem á sér svo ríka hefð í suðrænum eldhúsum. Undanfarin ár hefur efni verið safnað frá öllum landsfjórðungum sem sýna svipmyndir úr sjávarþorpinu. Vefsíður styðja við þetta, halda utan um útgefið efni, hagnýtar upplýsingar og grunnskilaboð verkefnisins.

Björgvin Þór Björgvinsson

Björgvin Þór Björgvinsson

Fagstjóri sjávarútvegs, útflutningur og fjárfestingar.

Björgvin Þór Björgvinsson

Fagstjóri sjávarútvegs, útflutningur og fjárfestingar
Kristinn Björnsson

Kristinn Björnsson

Verkefnastjóri, útflutningur og fjárfestingar.

Kristinn Björnsson

Verkefnastjóri, útflutningur og fjárfestingar