Heilræði fyrir íslensk fyrirtæki og alla áhugasama!
Þegar kemur að því að stíga fyrstu skrefin í átt að umhverfis- og loftslagsvænni rekstri er mikilvægt að forgangsraða eftir því hvað fyrirtæki getur raunverulega gert og viðhaldið. Þar skiptir einnig miklu máli að skilgreina hvernig verkefnið verður unnið og ef markmiðið er kolefnishlutleysi þá þarf að hafa þessi þrjú skref í huga:
1. Skilgreina og lágmarka óþarfa losun (lágmörkun)
a) Mæla losun
b) Skilgreina og lágmarka
2. Draga sem mest úr losun (samdráttur)
a) Mæla losun
b) Skilgreina aðgerðir til samdráttar
3. Jafna út það sem eftir stendur (jöfnun)
a) Jafna út óhjákvæmilega losun
b) Leitast við að nýta vottaða kolefnisjöfnun
Eftirfarandi skref eru ætluð til að aðstoða fyrirtæki og aðra sem vilja gera beta og taka þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Upptalningin er ekki tæmandi en vísað er á síður þar sem hægt er að kynna sér smáatriði nánar.
Fyrstu skrefin
- Áætla hver losun fyrirtækis er núna
Almenn skref – Lítil skref geta haft mikil áhrif
- Draga úr pappírsnotkun
- Endurvinna/endurnýta gamlan tölvubúnað
- Hvetja starfsfólk til að taka kjötlausan dag
- Flokka rusl
- Skipta yfir í netáskrift fréttablaða
- Útrýma einnota ílátum
Kaffibollar, glös, diskar o.s.frv.
- Styðja og hvetja starfsfólk til góðra verka
Samgöngustyrkir
Fræðsla
- Notkun fjarfundarbúnaðar og fækkun funda í þrívídd
Innanbæjar
Utanlands
Orkusparnaður – fylgjast með orkunotkun húsnæðis, búnaðar og starfsmanna
- Húshitun
Lækka á ofnum og spara orku
- Lýsing
Slökkva ljós í lok dags
Nota sparperur
- Einangrun og ástand húsnæðis
- Slökkva á raftækjum
- Kaupa orkunýtin heimilis- og raftæki
- Nota stiga frekar en lyftu
Skref í átt að orkuskiptum og umhverfisvænni ferðamáta
- Huga að bílaflota fyrirtækis
Draga úr ferðum
Skipta yfir í hreinni bíla
Ef ekki er til fjármagn til að skipta út flotanum þá er mikilvægt að sinna viðhaldi
- Draga úr notkun miðstöðvar
- Halda jöfnum og góðum þrýstingi í dekkjum
- Kolefnisjafna flotann
Reiknivél hjá Kolviði
Hvetja starfsfólk til umhverfisvænni og heilsusamlegri ferðamáta
- Hjóla
- Ganga
- Nota almenningssamgöngur
- Styrkja innviði
Starfsmannaðstaða með sturtu
Sveigjanleiki
Fjárhagsleg hvatning
Nokkur skref um flokkun og fullnýtingu
- Matarsóun
- Matarspor – kolefnisspor máltíða
Matarreiknir EFLU
- Ábyrg innkaup
Á vef Vistvænna innkaupa má finna handbækur og annað ítarefni
- Endurunnar og umhverfismerktar vörur
Á vef Umhverfisstofnunar má lesa nánar um umhverfismerkingar
- Hugmyndir í eldhúsinu
Uppskriftir og ráð
- Komdu upp moltu í vinnunni/garðinum/pallinum/svölunum
Leiðbeiningar Umhverfisstofnunar um jarðgerð
- Grænir fingur
Kryddjurtarækt
Afþreying fyrir áhugasama
Getur verið jákvætt í pásum í vinnu
Hefur mögulega áhrif yfir í einkalíf fólks – inn á heimilin
- Úrgangsmál
- Minnka sorp
- Endurnota eins mikið og unnt er
- Endurvinna það sem eftir stendur
- Ítarefni má nálgast hér að neðan
Terra – fræðsla og ráðgjöf fyrir fyrirtæki
Íslenska gámafélagið – flokkun og fræðsla
Sorpa – fyrirtæki, hvert fer mitt sorp?
Úrvinnslusjóður – leiðbeiningar og fræðsla
Þá losun sem er hvorki hægt að stöðva né draga úr með einum eða öðrum hætti er hægt að kolefnisjafna. Bæði má kolefnisjafna ákveðna hluta af starfsemi, svo sem bílaflota eða viðburði, en einnig er hægt að ganga lengra og kolefnisjafna alla starfsemi.
Hægt er að kolefnisjafna og bæta fyrir eigin losun með því að fjármagna verkefni sem koma í veg fyrir losun á samsvarandi magni gróðurhúsalofttegunda eða með því að fjarlægja samsvarandi magn úr andrúmsloftinu. Fjölmargir aðilar, innlendir og erlendir, bjóða fyrirtækjum kolefnisjöfnun og má nálgast upplýsingar um ýmsa aðila á vef Umhverfisstofnunar
Mikilvægt er að kynna sér þá aðila sem ætlun er að kolefnisjafna hjá og ganga úr skugga um að þeir séu vottaðir. Auk þess skiptir miklu máli að fyrirtæki geri sér grein fyrir því að kaup á kolefnisjöfnun er ekki vottorð til að gefa í og menga meira. Fyrstu skref í kolefnisjöfnun geta verið að setja sér markmið um að jafna út losun vegna viðburða, flugferða og aksturs, en það þarf ekki að vera kostnaðarsamt.
Hvert má leita eftir ráðgjöf?
Fjölmargir aðilar og stofnanir hafa mótað leiðbeiningar eða lista yfir ráðgjafa á þessu sviði og má þar m.a. nefna FESTU og Umhverfisstofnun
Grænvangur fagnar öllum ábendingum um sambærilegar leiðbeiningar, lista, reiknivélar og annað sem getur nýst fyrirtækjum sem eru að stíga skref í rétta átt.
Ef þú lumar á upplýsingum, ekki hika við að hafa samband við Birtu Kristínu Helgadóttur: birta@green.is.