Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa

Útflutnings- og markaðsráð


Í febrúar 2019 skipaði utanríkisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, 31 fulltrúa til setu í útflutnings- og markaðsráði Íslandsstofu til næstu fjögurra ára. Tíu þeirra eru án tilnefningar en 21 samkvæmt tilnefningum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samstarfshóps Markaðsstofu landshlutanna.

Hlutverk ráðsins er að marka, samþykkja og fylgjast með framkvæmd á langtímastefnumótun stjórnvalda og atvinnulífs fyrir markaðssetningu og útflutning. Ráðið skal taka til umfjöllunar tillögur að verkefnum sem unnin eru í samvinnu atvinnulífs og stjórnvalda og tryggja að slík verkefni falli að markaðri langtímastefnu. Ráðið getur skipað starfshópa úr ráðinu um afmörkuð verkefni og skal Íslandsstofa vera þeim til ráðgjafar. Sjá nánar í lögum um Íslandsstofu neðst á síðu.

Eftirtaldir skipa útflutnings- og markaðsráð næstu fjögur ár

Án tilefningar: 
Anna Björk Bjarnadóttir
Arnar Þórisson
Ásta S. Fjeldsted
Birna Hafstein
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Hlynur Guðjónsson
Þorkell Sigurlaugsson
Þór Sigfússon
Þórey Vilhjálmsdóttir
Þórlindur Kjartansson
Ásta V. Roth Aðalsteinsdóttir (varam.)
Óli Örn Eiríksson (varam.)
Sara Lind Þrúðardóttir (varam.)
Sigtryggur Baldursson (varam.)
Salóme Guðmundsdóttir (varam.)
Nikulás Hanningan (varam.)
Magnús Þór Torfason (varam.)
Fríða Björk Ingvarsdóttir (varam.)
Atli Kristjánsson (varam.)
Sólrún Sverrisdóttir (varam.)

Tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: 
Tjörvi Bjarnason
Viðar Engilbertsson
S. Guðrún Hauksdóttir
Ása Þórhildur Þórðardóttir (varam.)
Sigurgeir Þorgeirsson (varam.)
Brynhildur Benediktsdóttir (varam.)
Tilnefnd af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:
Halla Helgadóttir
Baldvin Jónsson
Soffía Kristín Þórðardóttir
Sigrún Brynja Einarsdóttir (varam.)
Ingvi Már Pálsson (varam.)
Emilía Ottesen (varam.)

Tilefnd af mennta- og menningarmálaráðherra:
Hrannar Pétursson
Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Jóhanna Olga Hreiðarsdóttir
Laufey Kristín Skúladóttir (varam.)
Hafþór Eide Hafþórsson (varam.)
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir (varam.)

Tilefnd af Samtökum atvinnulífsins: 
Birna Ósk Einarsdóttir
Bjarney Harðardóttir
Eiríkur Magnús Jensson
Gestur Pétursson
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Hlynur Veigarsson
Kristinn Þórðarson
Pétur Óskarsson
Stefanía G. Halldórsdóttir
Jón Þór Gunnarsson (varam.)
Karl Jóhann Jóhannsson (varam.)
Anna Guðmundsdóttir (varam.)
Katrín Pétursdóttir (varam.)
Frosti Ólafsson (varam.)
Helgi Anton Eiríksson (varam.)
Laufey K. Skúladóttir (varam.)
Tatjana Latinovic (varam.)
Eva María Þórarinsdóttir (varam.)
Ríkharður Ríkharðsson (varam.)

Tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga:
Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Páll Snævar Brynjarsson (varam.)

Tilnefnd af Markaðsstofu landshlutanna:
Arnheiður Jóhannsdóttir
Díana Jóhannsdóttir (varam.)

Fulltrúar stjórnmálaflokka: 
Inga Sæland Ástvaldsdóttir (Flokkur fólksins)
Atli Ásmundsson (Miðflokknum)
Jarþrúður Ásmundsdóttir (Viðreisn)
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Samfylkingunni)
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (Pírötum)

Ráðherrar: 
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra (form.)
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Lög um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, 2. grein a


Útflutnings- og markaðsráð

Starfrækt skal útflutnings- og markaðsráð. 
Hlutverk ráðsins er að marka, samþykkja og fylgjast með framkvæmd á langtímastefnumótun stjórnvalda og atvinnulífs fyrir markaðssetningu og útflutning. 
Ráðið skal taka til umfjöllunar tillögur að verkefnum sem unnin eru í samvinnu atvinnulífs og stjórnvalda og tryggja að slík verkefni falli að markaðri langtímastefnu. 
Ráðherra sem fer með utanríkismál skipar 31 fulltrúa í ráðið til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara. Tíu skulu skipaðir án tilnefningar en 21 samkvæmt tilnefningum eftirtalinna aðila: tíu samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins,
þrír samkvæmt tilnefningu ráðherra sem fer með sjávarútvegs- og landbúnaðarmál,
þrír samkvæmt tilnefningu ráðherra sem fer með ferðamál og málefni iðnaðar og nýsköpunar,
þrír samkvæmt tilnefningu ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál,
einn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga,
einn samkvæmt tilnefningu samstarfshóps markaðsstofa landshlutanna.

Við tilnefningar skv. a-lið 4. mgr. skal höfð hliðsjón af stærð fyrirtækja við öflun útflutningstekna. Auk fulltrúa skv. 4. mgr. skulu eiga sæti í ráðinu ráðherra sem fer með utanríkismál og er hann jafnframt formaður ráðsins, ráðherra sem fer með sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, ráðherra sem fer með ferðamál og málefni iðnaðar og nýsköpunar, ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál og ráðherra sem fer með umhverfis- og auðlindamál ásamt fulltrúum þingflokka utan ríkisstjórnar á hverjum tíma. 
     Útflutnings- og markaðsráð getur skipað starfshópa úr ráðinu um afmörkuð verkefni og skal Íslandsstofa, sjálfseignarstofnun, vera þeim til ráðgjafar.