Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
22. október 2018

Afmælishátíð íslenska hestsins fagnað í Danmörku

Afmælishátíð íslenska hestsins fagnað í Danmörku
Íslenska sendiráðið í Kaupmannahöfn og markaðsverkefnið Horses of Iceland tóku þátt í 50 ára afmælishátíð Íslandshestasamtakanna í Danmörku 21. október sl.

Íslenski hesturinn dró að sér mikla athygli almennings og tóku um 2.500 manns þátt í hátíðarhöldunum. Fjörutíu knapar og hestar tóku þátt í skrúðreið sem fór frá konunglegu hesthúsunum við Kristjánsborgarhöll í gegnum miðbæ Kaupmannahafnar, m.a. niður Strikið, og að Norðurbryggju á Kristjánshöfn. Það voru samstarfsráðherrar Norðurlandanna í Danmörku og Íslandi sem leiddu skrúðreiðina, þau Eva Kjer Hansen og Sigurður Ingi Jóhannsson.

Á Norðurbryggju, þar sem sendiráð Íslands er til húsa, var fjölbreytt dagskrá allan daginn sem tengist íslenska hestinum og íslenskri menningu. Hafnarbræður og Dóttir, tveir af fimm kórum Íslendinga í Kaupmannahöfn, tóku á móti hópreiðinni með söng. Gestir fengu að klappa hestunum, boðið er upp á fyrirlestra og kynningar á hlutverki íslenska hestsins, kvikmyndasýningar, íslenskan mat og til sölu var fjölbreyttur varningur sem tengist Íslandshestasamfélaginu og íslenskri menningu. Dönsku Íslandshestasamtökin gáfu út bókina „Gudernes heste i Danevang“ í tilefni af 50 ára afmælinu. Icelandair bauð upp á happdrætti og var gjafabréf fyrir Íslandsferð í vinning. Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins hélt fyrirlestur um íslenska hestinn á fullveldisöld. Kynningarmyndbönd Horses of Iceland voru spiluð og gátu gestir einnig skoðað hestinn í íslenskri náttúru með 360° sýndarveruleikagleraugum og fengið kynningarefni með fallegum myndum af íslenska hestinum. 

Dönsku Íslandshestasamtökin eru aðilar að Horses of Iceland markaðsverkefninu sem Íslandsstofa leiðir og því kom Íslandsstofa að dagskránni með virkum hætti. Markmiðið með þessum viðburði var að breiða út þekkingu á íslenska hestinum og auka áhuga á Íslandshestamennskunni í Danmörku, og fagna bæði 50 ára afmæli Íslandshestasamtakanna í Danmörku og 100 ára fullveldinu.

Samfélagið um íslenska hestinn í Danmörku er mjög öflugt, en fjöldi íslenskra hesta í Danmörku er 37.000 og u.þ.b. 10.000 félagsmenn stunda hestamennsku á íslenskum hestum í 66 hestamannafélögum.


 

Deila