Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
6. maí 2020

Aldrei fleiri frumkvöðlafyrirtæki í matvælum

Aldrei fleiri frumkvöðlafyrirtæki í matvælum
Á tímum heimsfaraldurs af völdum COVID-19 hefur berlega komið í ljós mikilvægi fæðuöryggis fyrir þjóð eins og Íslendinga.

Um leið og sjónum er beint að innlendri matvælaframleiðslu sést sú mikla gróska sem er í þessari atvinnugrein. Ekki síst á það við um fjölmarga nýja sprota í matvæla- og heilsuefnaframleiðslu.

Aldrei áður hafa jafn mörg ný fyrirtæki á sviði matvæla- og heilsuefnaframleiðslu litið dagsins ljós hérlendis eins og undanfarin ár. Fjöldi nýsköpunarfyrirtækja á þessu sviði er vísbending um að mikil tækifæri eru til vaxtar fyrir íslenskt atvinnulíf um allt land í matvælaframleiðslu.

Hvernig hefur nýsköpunarfyrirtækjum á þessu sviði vegnað og hvað þarf að gera til að styrkja stöðu þeirra enn frekar? Í nýútkominni skýrslu sem ber heitið Lærum af reynslunni er leitað svara við þessum spurningum og birtar tillögur um mögulegar útbætur sem eflt geta enn frekar nýsköpunarumhverfið.

Forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem rætt var við telja að íslenskt umhverfi sé að mörgu leyti ákjósanlegt fyrir frumkvöðlastarfsemi í matvælaframleiðslu. Innlendar verslanir, neytendur og fjölmiðlar sýni nýjum vörum og nýjum fyrirtækjum mikinn áhuga og skilning. Flækjustigið lá mun meira í framleiðslunni sjálfri, háum kostnaði og síðar meira í dýru og flóknu ferli við að hefja útflutning. Í skýrslunni er einnig bent á að samstarf á milli nýsköpunarfyrirtækja hefur verið lítið og það má efla. Sjá niðurstöður í heild

“Lærum ef reynslunni” er samstarfsverkefni Íslenska sjávarklasans og Matarauðs Íslands í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Íslandsstofu.


Deila