Eflum þátttöku kvenna í nýsköpun - ráðstefnan Women InNovation haldin 5. mars
Föstudaginn 5. mars nk. verður alþjóðlega ráðstefnan Women InNovation haldin rafrænt frá New York. Á ráðstefnunni verður skoðuð vegferð kvenna í nýsköpun, rætt hverjar helstu áskoranir eru á þessu sviði og leitast við að finna leiðir til að hvetja konur til frekari þátttöku í frumkvöðlastarfi.
Yfir 30 hugsjónarkonur og -menn víðsvegar að úr heiminum munu stíga á stokk, en meðal ræðumanna er Frú Eliza Reid sem hvetur til þátttöku í ráðstefnunni með þeim orðum:
„Women InNovation er frábært framtak Norðurlandanna þar sem hagsmunaaðilar á heimsvísu koma saman og leitast við að svara þeirri knýjandi spurningu: Hvernig getum við hvatt konur til dáða, veitt þeim stuðning og stuðlað að aukinni fjármögnum á verkefnum kvenna í frumkvöðlastarfi?"
Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu:
„Ég hef lengi brunnið fyrir það verkefni að hvetja konur til þátttöku í nýsköpun og viðskiptahröðlum. Með því að fjölga konum á þessu sviði, fjölgar kvenkyns stofnendum fyrirtækja og forstjórum. Þessu fylgir einnig sú afleiðing að konum fjölgar í hópi þeirra sem sækja fjármagn til fjárfesta, en peningum fylgir vald og áhrif til að breyta heiminum. Þessi viðburður á erindi við alla sem hafa áhuga á nýsköpun og áhugaverðum nýjungum."
Ráðstefnan fer fram föstudaginn 5. mars nk. kl. 14.00-22.30 að íslenskum tíma.
Allir áhugasamir eru hvattir til að taka SKRÁ SIG HÉR en þátttaka er án endurgjalds.
Viðburðurinn er skipulagður af Nordic Innovation House í New York, í samstarfi við Business Iceland (Íslandsstofu), Business Finland, Innovation Norway og Business Sweden, ásamt sendiráðum Íslands, Svíþjóðar, Finnlands og Noregs í New York.