Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
10. febrúar 2016

Fjölbreytt fyrirtæki taka þátt í ÚH 26

Fjölbreytt fyrirtæki taka þátt í ÚH 26
Útflutningsverkefni Íslandsstofu (ÚH) hófst í 26. sinn í lok janúar sl. Tíu íslensk fyrirtæki sem koma víðsvegar að af landinu taka þátt í verkefninu í ár.

Útflutningsverkefni Íslandsstofu (ÚH) hófst í 26. sinn í lok janúar sl. Verkefnið er ætlað fyrirtækjum sem vilja ná árangri í markaðssetningu á erlendum markaði og hentar vel stjórnendum fyrirtækja sem vilja:

  • fara í gegnum faglegan 4 mánaða feril til að markaðssetja vöru erlendis
  • fá stuðning frá bæði sérfræðingum og jafningjum sem eru í svipuðum hugleiðingum
  • finna sér tíma til að framkvæma það sem lengi hefur verið á döfinni
     

Alls taka tíu fyrirtæki þátt í verkefninu í ár sem lýkur þann 19. maí. Fyrirtækin eru staðsett víðs vegar um landið og með ólíka starfsemi, þau eru: Ankra, Crowbar, Gandur, Mountaineers of Iceland, ImonIt, Rafnar, Ritari.is, Thula, Uppstreymi og Vizido.

Verkefnið er haldið árlega og áætlað er að næsta ÚH verkefni hefjist í janúar 2017. Allar nánari upplýsingar má finna hér.

Deila