Fjöldi sótti ráðstefnu um heildarúttekt á ferðaþjónustu
![Fjöldi sótti ráðstefnu um heildarúttekt á ferðaþjónustu](/media/1/hvert-stefnum-vid-4.jpg)
Rúmlega 260 manns sóttu ráðstefnu um heilarúttekt á íslenskri ferðaþjónustu sem Íslandsstofa gekkst fyrir í morgun og um 60 manns fylgdust með í gegnum fjarfundabúnað. Á ráðstefnunni var kynnt ný skýrsla sem breska ráðgjafafyrirtækið PKF hefur unnið fyrir Íslandsstofu og Græna hagkerfið í framhaldi af úttekt á greininni hér heima. Í skýrslunni er tekið á málefnum sem snerta innviði, markaðssetningu, fjárfestingar, uppbyggingu á ferðaþjónustu, stefnumótun ásamt aðgerðaráætlun.