Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
16. október 2015

Íslandsstofa kynnti umhverfisvænar lausnir á sýningunni World Efficiency

Íslandsstofa kynnti umhverfisvænar lausnir á sýningunni World Efficiency
Umhverfisvænar lausnir voru í brennidepli á vörusýningunni World Efficiency sem haldin var í París í vikunni. Íslandsstofa var með bás á sýningunni tileinkaðan lausnum frá íslenskum fyrirtækjum í sjávarklasanum.

Umhverfisvænar lausnir voru í brennidepli á  vörusýningunni World Efficiency sem haldin var í París í vikunni. Íslandsstofa var með bás á sýningunni tileinkaðan lausnum frá íslenskum fyrirtækjum í sjávarklasanum. Lausnirnar byggja m.a. á betri orkunýtingu, minni olíunotkun og betri hráefnisnýtingu. Einnig var boðið upp á vinnustofur um ólíkar lausnir, þ.á.m. um hringrásarhagkerfið þar sem íslenski sjávarútvegsklasinn var m.a. til umræðu.

Sýningin er haldin rétt rúmum sex vikum fyrir upphaf ríkjaráðstefnu aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP21, og gefur þar að líta ýmsar lausnir fyrirtækja sem hjálpa við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Norræna ráðherranefndin stóð að baki sameiginlegri þátttöku Norðurlandanna í sýningunni og voru sameiginleg skilaboð þeirra þau að fjárfesting í endurnýjanlegri orku og orkunýtni sé ekki eingöngu góð fyrir umhverfið heldur einnig arðbær til framtíðar. 

Sjá frétt utanríkisráðuneytisins um þátttöku Íslands í sýningunni 

Deila