Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
22. september 2020

Íslandsstofa tekur við verkefnum Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur

Íslandsstofa tekur við verkefnum Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur
Verkefni Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur (Meet in Reykjavík) verða framvegis rekin innan Íslandsstofu.

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt samning milli Íslandsstofu, Reykjavíkurborgar, Icelandair Group hf. og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. þess efnis að Íslandsstofa taki að sér rekstur markaðsverkefnisins Ráðstefnuborgin Reykjavík (Meet in Reykjavík). Áður hafði samningurinn verið samþykktur á auka aðalfundi Meet in Reykjavík og af stjórn Íslandsstofu.

Meet in Reykjavík var stofnað árið 2012 í þeim tilgangi að kynna og markaðssetja Reykjavík og Ísland sem áfangastað fyrir fundi, ráðstefnur, hvataferðir og viðburði (MICE). Félagið hefur verið rekið sem samvinnuverkefni opinberra aðila og einkaaðila og gerir samningurinn ráð fyrir að svo verði áfram. Í dag eru um 40 fyrirtæki með aðild að félaginu.

Markmiðið með samningnum er fyrst og fremst að styrkja stöðu verkefnisins með það fyrir augum að efla kynningu á áfangastaðnum. Tryggja fjármögnun þess til langs tíma og að ná fram rekstrarhagræði þannig að hærra hlutfall fjármagns renni til beinna markaðsaðgerða. Samningurinn gefur tækifæri til að samnýta aðföng, sérhæfða stoðþjónustu, reynslu og þekkingu starfsfólks og samræma ímyndarskilaboð og áherslur í kynningu. Unnið verður í samræmi við stefnu íslenskrar ferðaþjónustu, útflutningsstefnu Íslands og ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar.

Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir starfsemi Meet in Reykjavík  falla vel að stefnu og starfsemi Íslandsstofu. „Ráðstefnu-  og hvataferðaþjónusta er mikilvægur liður í að auka verðmætasköpun í ferðaþjónustu þegar horft er til langs tíma. Áhrif COVID-19 faraldursins komu snemma fram í þessum geira og því miður er ýmislegt sem bendir til þess að hann verði lengur að ná fyrri styrk en önnur ferðaþjónusta. Það er því mikilvægara en nokkru sinni fyrr að sameina kraftana. Það eru þó fjöldi tækifæra í þessu ástandi fyrir okkur; ímynd áfangastaðarins er sterk og viðbrögð Íslands við COVID-19 hafa víða fengið jákvæða athygli. Þá höfum við tæknilega getu til þess að mæta auknum kröfum um stafrænar lausnir á ráðstefnu og fundarhaldi.“

Arna Schram sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og stjórnarformaður Meet in Reykjavík segir samninginn í takt við þann vilja borgarinnar að leggja áherslu á fjölþjóðlegt funda- og ráðstefnuhald við frekari uppbyggingu ferðaþjónustu í borginni. „Samningurinn tryggir framtíð verkefnisins Meet in Reykjavík og að byggt verði ofan á þann góða árangur sem þegar hefur náðst til að fjölga ráðstefnugestum í borginni. Með samstarfinu við Íslandsstofu vonumst við til þess að slagkrafturinn verði enn meiri enda eru sett metnaðarfull markmið um fjölgun ráðstefnugesta í drögum að nýrri ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar. Slíkir gestir hafa verið flokkaðir sem betur borgandi gestir; þeir eyða meiru, eru umhverfisvænni og koma frekar utan háannatíma í ferðaþjónustu.“


Deila