Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
8. desember 2020

Íslensk erfðagreining hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2020

Íslensk erfðagreining hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2020
Á myndinni eru f.v. Margrét Guðnadóttir, fulltrúi Hildar Guðnadóttur, forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, Guðjón Ketilssson, listamaður, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Hildur Árnadóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu.

Íslensk erfðagreining hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2020. Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins veitti verðlaununum viðtöku við lokaða athöfn í Hörpu. Við sama tilefni var Hildi Guðnadóttur, tónskáldi og tónlistarmanni, veitt heiðursviðurkenning fyrir störf sín á erlendri grundu.

Íslensk erfðagreining


Á síðustu árum hefur ný hugvitsgrein sprottið úr öflugu íslensku vísindasamfélagi og traustu heilbrigðiskerfi; líf- og heilsutækni í víðtækum skilningi. Fyrir utan efnahagslegt mikilvægi þessarar starfsemi fyrir þjóðarbúið og þau spennandi tækifæri sem hún skapar fyrir ungt og menntað fólk, hefur bein þýðing lífvísindanna fyrir líf og heill almennings komið berlega í ljós í yfirstandandi heimsfaraldri.
 

Ein þýðingarmestu tímamót í þróun þessarar mikilvægu atvinnugreinar á Íslandi er án efa stofnun Íslenskrar erfðagreiningar. Hér var komið eitt af fyrstu stóru fjárfestingaverkefnunum með aðkomu erlendra aðila, sem ekki byggði á orkuauðlindum okkar heldur þekkingu og hugviti. Áhrifin af tilkomu fyrirtækisins náðu langt út fyrir eiginlega starfsemi þess enda var grunnur lagður að nýrri tegund alþjóðlegrar þekkingarstarfsemi hér á landi. Til varð stærri og frjórri vettvangur vísindastarfs í atvinnulífinu sem laðaði bæði innlenda og erlenda sérfræðinga til landsins. Ófá íslensk fyrirtæki á þessu sviði má beinlínis rekja til þess jarðvegs sem hér varð til. 

Í nýrri framtíðarstefnu fyrir íslenskan útflutning er litið sérstaklega til lífvísindanna sem mögulegrar uppsprettu aukinna útflutningstekna á komandi árum. Því skiptir orðspor greinarinnar utan landsteinanna miklu máli.  

Framlag fyrirtækisins til leitarinnar að orsökum margra alvarlegustu sjúkdóma mannkyns, svo sem krabbameina, hjartasjúkdóma og sykursýki, er afar mikilvægt. Undanfarin ár hefur útflutningsvara Íslenskrar erfðagreiningar verið þekking og aukinn skilningur á orsökum þessara sjúkdóma. 

Í yfirstandandi heimsfaraldri hefur Íslensk erfðagreining gegnt afar þýðingarmiklu hlutverki. Framlag fyrirtækisins í baráttunni við að ná tökum á faraldrinum og halda þar með efnahagslega og þjóðhagslega mikilvægri starfsemi gangandi, hefur vegið afar þungt. Umfjöllun fjölda virtra alþjóðlegra fjölmiðla dró upp mynd af landi með þróaða innviði, vísindastarf og líftæknifyrirtæki á heimsvísu. Sú umræða er styrkur fyrir allar útflutningsgreinar, ekki síst ferðaþjónustuna.

Hér má sjá fyrri verðlaunahafa Útflutningsverðlauna forseta Íslands

Hildur Guðnadóttir heiðruð 

Samhliða afhendingu Útflutningsverðlaunanna var Hildi Guðnadóttur, tónskáldi og tónlistarmanni, veitt sérstök heiðursviðurkenning fyrir eftirtektarverð störf á erlendri grundu. Með sköpun sinni hefur orðspor Hildar borist út um allan heim á undanförnum árum og hún hlotið verðskuldaðar viðurkenningar. Hildur vann á þessu ári Óskarsverðlaunin, fyrst Íslendinga. Hún hafði áður m.a. hlotið Emmy verðlaun, Grammy verðlaun, Golden Globe og BAFTA verðlaunin. Þá er hún tilnefnd til tvennra Grammy verðlauna sem verða afhent í janúar nk. 

Systir Hildar, Margrét Guðnadóttir, veitti verðlaununum viðtöku fyrir hennar hönd. 

Verðlaunagripurinn

Handhafi Útflutningsverðlaunanna hlýtur, auk heiðursins, listaverk Guðjóns Ketilssonar, sem hann vann sérstaklega af þessu tilefni og ber heitið Kistill. Á allar hliðar kistilsins hefur Guðjón ritað með svörtu bleki nöfn formæðra sinna og forfeðra eins langt aftur og Íslendingabók greinir frá og er kistillinn táknrænn fyrir þá sögu, þekkingu og hugvit sem íslenska þjóðin býr yfir.

Um útflutningsverðlaunin

Tilgangurinn með veitingu Útflutningverðlaunanna er að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem hafa náð sérstaklega góðum árangri í sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu erlendis. Veiting verðlaunanna tekur mið af verðmætisaukningu útflutnings, hlutdeild útflutnings í heildarsölu, markaðssetningu á nýjum mörkuðum og fleiru.  

Útflutningsverðlaunin eru nú veitt í 32. sinn en þau voru fyrst afhent árið 1989. Meðal annarra fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina eru Sjóklæðagerðin – 66°Norður, Trefjar ehf, Nox Medical, Truenorth og Ferðaskrifstofa bænda, og á síðasta ári hlaut Marel verðlaunin.

Í úthlutunarnefndinni sátu að þessu sinni: Örnólfur Thorsson, frá embætti forseta Íslands, Gylfi Magnússon, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, frá Alþýðusambandi Íslands og Hildur Árnadóttir frá Íslandsstofu, en Íslandsstofa ber ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd við verðlaunaveitinguna.

Deila