Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
14. apríl 2021

Íslensk matvæli á Þýskalandsmarkaði

Íslensk matvæli á Þýskalandsmarkaði
Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Berlín stóðu fyrir vefkynningu um þýska matvælamarkaðinn á dögunum.

Þann 13. apríl stóðu Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Berlín fyrir vefkynningu um þýska matvælamarkaðinn. Sendiherra Íslands í Berlín, María Erla Marelsdóttir, ávarpaði fundinn og bauð íslensk fyrirtæki velkomin til Þýsklands og sagði frá þjónustu sendiráðsins. Því næst var boðið upp á þrjár kynningar.

Max-Henrik Fabian, markaðsráðgjafi IFH Köln, sagði frá stöðunni á þýska matvælamarkaðnum og horfði þar bæði á smásölu- og veitingahúsamarkaðinn. Í erindi Max-Henrik kom m.a. fram hversu mikil áhrif Covid-19 hefur haft á veitingahúsamarkaðinn í Þýskalandi en samdrátturinn þar er um 27% þegar árin 2019 og 2020 eru borin saman. Hér má nálgast kynninguna

Þeir Ingmar Fritz Rauch, framkvæmdastjóri Gourmet Scouts og Wolfgang Bauer, framkvæmdastjóri frystra fisk- og kjötafurða Wydra International/RW-Warenhandels-GmbH greindu frá sögunni á bak við vegferð íslenska lambakjötsins undir vörumerkinu “Vikingyr” á þýska markaðnum. Hér má nálgast kynninguna 

Í erindi sínu fjallaði Ruth Bobrich, viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Berlín, um íslenskar vörur á þýska markaðnum, tók nokkur dæmi og sagði frá aðkomu sendiráðsins við að greiða götu þeirra íslensku fyrirtækja sem sækja inn á þýska markaðinn. Hér má nálgast kynninguna


Deila