Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
17. september 2018

Íslensk sjávarútvegstækni kynnt í St. Pétursborg

Íslensk sjávarútvegstækni kynnt í St. Pétursborg
Íslandsstofa, í samvinnu við sendiráð Íslands í Rússlandi, tók á dögunum þátt í alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni Global Fishery Forum & Seafood Expo Russia í Sankti Pétursborg.

Íslandsstofa stóð þar fyrir þjóðarbás með tíu fyrirtækjum í sjávarútvegstækni. Fjögur íslensk fyrirtæki tóku að auki þátt í sýningunni á eigin vegum. Á þjóðarbásnum kynntu íslensk fyrirtæki í sjávarútvegstækni og tengdri starfsemi hugvitssamar lausnir og þjónustu undir merkjum Íslands og Sea Tech Solutions. Á sýningunni gafst einnig gott tækifæri til að mynda ný viðskiptatengsl og styrkja þau sem fyrir voru.

Íslensku fyrirtækin sem tóku þátt í þjóðarbásnum voru; Borgarplast, D-Tech, Polar Doors, Valka og KNARR (Brimrún, Frost, Nautic, Naust Marine, Skaginn 3X og Skipatækni). Einnig voru eftirtalin fyrirtæki með eigin bás á sýningunni; Hampiðjan, KAPP, Marel, Skipasýn og Sæplast.

Samhljómur var um að umtalsverð tækifæri séu fyrir íslenska sjávarútvegstækni á rússneskum markaði og mál manna að vel hafi tekist til hjá íslensku fyrirtækjunum á sýningunni. Nokkur af þeim hafa þegar komið sér vel fyrir á Rússlandsmarkaði. Á KNARR básnum fór m.a. fram formleg opnun á Nautic Rus, rússneskri verkfræðistofu á sviði skipahönnunar sem íslenska fyrirtækið Nautic ehf. eignaðist ráðandi hlut í fyrr á árinu. Í tilefni opnunarinnar klipptu Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra Íslands í Rússlandi, og Alfreð Tulinius, stjórnarformaður, á borða á sýningunni til að marka formlega opnun Nautic Rus.

Íslenski hópurinn tók jafnframt þátt í ráðstefnuhluta sýningarinnar. Sendiráð Íslands í Moskvu og Íslandsstofa höfðu þar umsjón með skipulagningu smærri viðburðar þar sem hluti íslensku sendinefndarinnar kynnti vörur sínar og þjónustu auk þess taka þátt í pallborðsumræðum. Meðal ræðumanna voru m.a. Alfreð Tulinius hjá Nautic Rus, og Jónas Tryggvason hjá KNARR.

 

Deila