Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
27. nóvember 2019

Íslensk sprotafyrirtæki kynna verkefni sín á Slush

Íslensk sprotafyrirtæki kynna verkefni sín á Slush
Hópur aðila úr viðskiptalífinu, fulltrúar sprotafyrirtækja, aðilar úr stuðningsumhverfinu og frá ráðuneytum fór í viðskiptaferð til Helsinki dagana 19.-21. nóvember þar sem sótt var tækni- og fjárfestaráðstefnuna Slush.

Samhliða ráðstefnunni skipulagði Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Helsinki viðbótardagskrá þar sem settir voru upp kynningafundir, farið í fyrirtækjaheimsóknir og fundað með sprotafyrirtækjum og stoðumhverfinu í Finnlandi.

Í ár voru þátttakendur um 25.000 talsins en ráðstefnan hefur vaxið mjög hratt frá upphafi hennar árið 2009. Slush er orðin stærsti kynningaviðburður sprotafyrirtækja á Norðurlöndum og einn sá stærsti í heimi ef litið er til möguleika á beinum samskiptum milli sprotafyrirtækja og fjárfesta.

Íslenska sendinefndin samanstóð af 22 sprotafyrirtækjum, sem og fulltrúum frá Icelandic startups, Nýsköpunarmiðstöðinni, Atvinnu- og Nýsköpunarráðuneytinu, Auðna tæknitorgi, Origo, Evris, NSA Ventures, Crowberry Capital ,Brunnur Ventures, Frumtak Ventures, Iceland Ventures, Studio, Eyrir Invest, Dattacalabs og Origo.

Sendiráðið bauð til hádegisverðarmóttöku í samstarfi við Icelandic startups og Íslandsstofu til heiðurs íslensku sendinefndinni fyrir fjárfesta. Aðal markmið viðburðarins var að kynna íslensku sendinefndina á Slush og tengja við mögulega fjárfesta og samstarfsaðila. Segja má að móttakan hafi gengið framar vonum hvað varði þátttöku, áhuga frá fjárfestum, fjölmiðlafólki, samstarfsaðilum og mögulegum viðskiptavinum.

Fumkvöðlafyrirtækin voru jafnframt með erindi á Slush, aðrir með viðburði, einhverjir tóku þátt í pallborðsumræðum og þrjú fyrirtæki voru með kynningarbás. Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Mussila hlaut Norrænu fræðslu- og tækniverðlaunin (Ed­Tech) sem voru afhent við hátíðlega athöfn í Helsinki  þann 20.nóvember. 


Deila