Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
13. apríl 2016

Kína - efnahagsþróun og alþjóðasamstarf

Kína - efnahagsþróun og alþjóðasamstarf
Í tilefni af heimsókn Péturs Yang Li, viðskiptafulltrúa sendiráðs Íslands í Kína, boða Íslandsstofa og viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins til opins kynningarfundar miðvikudaginn 20. apríl nk.

Í tilefni af heimsókn Péturs Yang Li, viðskiptafulltrúa sendiráðs Íslands í Kína, boða Íslandsstofa og viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins til opins kynningarfundar miðvikudaginn 20. apríl nk. Á fundinum fjallar Pétur um stöðu og þróun efnahagsmála í Kína og stefnu þarlendra stjórnvalda í alþjóðasamstarfi, með áherslu á viðskipti, fjárfestingar og ferðaþjónustu. Þá veltir hann upp möguleikum í samstarfi Íslands og Kína á þessum sviðum.

Fundurinn er á Grand Hótel Reykjavík kl. 15.00-16.15 og er öllum opinn. 
Athugið að fundurinn fer fram á ensku

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hér að neðan eða í síma 511 4000.

Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir, erna@islandsstofa.is

Deila