Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
19. júní 2018

Kínverskir ferðamenn horfa í auknum mæli til Norðurlanda

Kínverskir ferðamenn horfa í auknum mæli til Norðurlanda
Íslandsstofa stóð fyrir fundi um kínverska ferðaþjónustumarkaðinn 12. júní sl. á Hótel Sögu. Á fundinum var fjallað um kínverska ferðamenn á Íslandi, tækifæri sem felast í komu ferðamanna frá Kína hingað til lands og áhuga þeirra á Norðurlöndunum.

Sara Grady, forstöðumaður, Travel & Tourism Product hjá GlobalData, ræddi um ferðavenjur kínverska ferðamanna og væntingar þeirra til áfangastaða. Daði Guðjónsson og Þorleifur Þór Jónsson, verkefnisstjórar hjá Íslandsstofu, fóru yfir viðhorf ferðamanna frá Kína til Norðurlandanna. Í máli þeirra kom fram að Norðurlöndin eru betur þekkt sem Norður-Evrópa sem þykir eftirsóknarverður áfangastaður, og þar á meðal Ísland sem er betur þekkt sem Ís-eyjan. Einnig kom fram að í Kína er Ísland talið jafnt sumar- sem vetraráfangastaður og er það helst einstök náttúran, kyrrðin og norðurljósin sem heilla. Ársæll Harðarson, svæðisstjóri Icelandair ræddi um hvað hann hafði lært í starfi sínum sem svæðistjóri Icelandair í Kína. Að lokum fór Reinhart Macharis frá Welcomechinese.com.cn yfir þau atriði sem vert væri að hafa í huga þegar taka á móti kínverskum ferðamönnum. Fundarstjóri var Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu. Fullt var út úr dyrum á fundinum, en um 90 gestir sóttu hann og því greinilegt að mikill áhugi er á viðfangsefninu.

Hér að neðan má sjá myndband frá fundinum.

Deila