Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
24. maí 2016

Málþing 30. maí um viðskiptatækifæri í Xiamen-borg í Kína

Málþing 30. maí um viðskiptatækifæri í Xiamen-borg í Kína
Íslandsstofa vekur athygli á málþingi um viðskiptatækifæri í Xiamen-borg í Kína sem haldið verður á Hótel Sögu mánudaginn 30. maí næstkomandi kl. 10-11.30.

Íslandsstofa vekur athygli á málþingi um viðskiptatækifæri í Xiamen-borg í Kína sem haldið verður á Hótel Sögu mánudaginn 30. maí næstkomandi kl. 10-11.30. Að málþinginu standa auk Íslandsstofu, Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, Sendiráð Alþýðulýðveldisins Kína og borgarstjórn Xiamen. Málþingið er skipulagt í tilefni af heimsókn viðskiptasendinefndar frá Xiamen og verða fulltrúar frá yfirvöldum og fyrirtækjum í borginni viðstaddir málþingið, sem fer fram á ensku og kínversku. 

Dagskrá:

Huang Feng, aðstoðarframkvæmdastjóri utanríkismálaskrifstofu Xiamen-borgar opnar málþingið.

Introduction to Xiamen
Ni Chao, varaborgarstjóri Xiamen

Iceland - China relations
Zhang Weidong, sendiherra Alþýðulýðveldisins Kína í Reykjavík

Chinese visitors to Iceland, opportunities and challenges
Ársæll Harðarson, formaður Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins

Invest in Iceland - free trade opportunities
Kristinn Hafliðason, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu

Business opportunities in Xiamen City
Huang Feng, aðstoðarframkvæmdastjóri utanríkismálaskrifstofu Xiamen-borgar

China International Fair for Investment and Trade
Cai Weihua, varadeildarstjóri á ráðstefnu- og sýningaskrifstofu Xiamen-borgar.

Að lokinni formlegri dagskrá er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi ráðrúm til að blanda geði við fulltrúa fyrirtækja og samtaka á málþinginu og skiptast á nafnspjöldum.

Málþingið verður haldið á Hótel Sögu, salnum Hekla I á annarri hæð.

Skráning á málþingið á vef ÍKV

Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir, erna@islandsstofa.is

Deila