Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
24. ágúst 2018

Markaðshraðall í New York - opið fyrir umsóknir

Markaðshraðall í New York - opið fyrir umsóknir
Íslensk sprotafyrirtæki eiga þess kost að sækja um þátttöku í markaðshraðli í tengslum við fyrirtækjasetur Nordic Innovation House í New York. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk.

Íslandsstofa, í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands, aðalræðisskrifstofu Íslands í New York og NIH-NY, kynna markaðshraðalinn "Entrepreneurial Marketing Program For Nordic Creative Tech Companies“.

Ertu sprotafyrirtæki og viltu vaxa á alþjóðavísu?

Þú getur sótt um hraðalinn í New York og fengið tækifæri á að vinna með leiðandi sérfræðingum við að móta markaðsstefnu til að laða að viðskiptavini, samstarfsaðila og fjárfesta. 

Hraðallinn

  • Tveggja daga upphafsfundur í Osló
  • Tveggja vikna vinnustofur (boot-camp) í New York.
  • Eftirfylgni í hálft ár
  • Þriggja mánaða aðild með skrifborði á frumkvöðlasetri Nordic Innovation House í New York. 

Hraðallinn tekur yfir átta mánaða tímabil og hefst á tveggja daga vinnu í Osló. Tveimur mánuðum síðar hittast sprotarnir í New York í tveggja vikna vinnustofu þar sem unnið er með leiðandi sérfræðingum í vörumerkjastjórnun, sölumálum og stafrænni markaðssetningu, slípun skilaboða og kynningarmálum.

Nánari upplýsingar um hraðalinn og tenging við umsókn.

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 31. ágúst 2018

Umsókn um hraðalinn í New York

Deila