Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
11. apríl 2016

Merkingar sjávarafurða: Fyrir hvern og af hverju? Fundur 14. apríl

Merkingar sjávarafurða: Fyrir hvern og af hverju? Fundur 14. apríl
Merki sem er að finna á umbúðum sjávarafurða geta verið fjölmörg. Þetta getur ruglað marga í ríminu, ekki aðeins neytendur heldur líka framleiðendur og innflytjendur sjávarafurða. Fundur um nýja skýrslu sem tengist þessu málefni verður haldinn 14. apríl nk. kl. 11.30 á Nauthól.

Nýlega kom út skýrsla um merkingar á neytendaumbúðum sjávarafurða í Evrópu, „Labelling Seafood – What a challange“. Það er fyrirtækið Marketing Seafood sem vann skýrsluna sem fjallar um ólíkar merkingar sem notaðar eru til að merkja neytendaumbúðir sjávafurða í Evrópu. 

Fimmtudaginn 14. apríl nk. kl. 10:30-12:00 mun Marie Christine Monfort kynna skýrsluna á opnum fundi sem fer fram á veitingastaðnum Nauthól við Öskjuhlíð. Í kjölfar kynningar Marie Christine verða umræður og viljum við hvetja framleiðendur og söluaðila sjávarafurða að mæta á fundinn og taka virkan þátt í þeim. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig með því að skrá sig hér að neðan.
Hægt verður að fylgjast með fundinum á netinu.

Nánar um efni skýrslunnar og fundarins:
Merki sem er að finna á umbúðum sjávarafurða geta verið fjölmörg. Þetta getur ruglað marga í ríminu, ekki aðeins neytendur heldur líka framleiðendur og innflytjendur sjávarafurða. Fyrir hverja eru þessar merkingar og fyrir hvaða standa þær? Markmiðið með skýrslunni, sem er fyrsta sinnar tegundar í Evrópu, er að leiða fólk í gegnum þennan frumskóg svo neytendur sem og starfsmenn fyrirtækja geti betur áttað sig á hvað þessi merki þýða og hvort þau hafi eitthvert notagildi í raun. 

Nánari upplýsingar um fundinn veitir Björgvin Þór Björgvinsson, bjorgvin@islandsstofa.is

Deila