Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
28. mars 2018

Morgunfundur - Sjálfbær orka og samkeppnisforskot Íslands

Morgunfundur - Sjálfbær orka og samkeppnisforskot Íslands
Charge - Energy Branding stendur fyrir morgunfundi um sjálfbæra orku og samkeppnisforskot Íslands þriðjudaginn 24. apríl kl. 8.30-10.30 á hótel Natura.

Þriðjudaginn 24. apríl kl. 8.30 - 10.30 á Icelandair Hótel Natura


Charge - Energy Branding stendur fyrir morgunfundi um sjálfbæra orku og samkeppnisforskot Íslands þriðjudaginn 24. apríl kl. 8.30-10.30 á hótel Natura. SKRÁ MIG

Hvernig geta atvinnugreinar á Íslandi nýtt sér hina hreinu orku til þess að þróa jákvæða ímynd og auka þannig virði vara og vörumerkja sinna? Áherslan á fundinum er á ferðaþjónustu, útgerð, framleiðslu og orkugeirann þar sem fjallað verður m.a. um eftirfarandi:

  • Hvernig nýtum við okkur ímynd hreinnar orku?
  • Aukinn ábati af orku án frekari virkjunaráforma
  • Getur Ísland hugsanlega misst sérstöðu sína sem land hreinnar orku?
  • Er sjálfbær orka nóg eða þarf meira til að tengja ímynd fyrirtækja við sjálfbærni?
  • Er hægt að auka arðsemi með sjálfbærni?
  • Skiptir ímynd sjálfbærni máli fyrir neytendur og fjárfesta?

Fyrirlesarar:

- Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu
- Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls
- Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims
- Viggó Örn Jónsson, Creative Director, J&L, sérfræðingur í mörkun

Umræðustjóri er Dr. Friðrik Larsen, fyrir hönd CHARGE/ HÍ

SKRÁ MIG Á FUNDINN

Deila