Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
12. maí 2020

Niðurstaða valnefndar um verkefnið „Ísland – saman í sókn“

Niðurstaða valnefndar um verkefnið „Ísland – saman í sókn“
Tillaga alþjóðlegu auglýsingastofunnar M&C Saatchi, í samstarfi við íslensku auglýsingastofuna Peel, hlaut hæstu einkunn valnefndar af innsendum tilboðum fyrir markaðsverkefnið „Ísland - saman í sókn.”

Verkefnið er hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19. Um er að ræða markaðs- og kynningarverkefni fyrir áfangastaðinn Ísland á völdum erlendum mörkuðum í því skyni að styrkja ímynd Íslands, auka eftirspurn og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu. Alls verður 1.500 milljónum króna varið í verkefnið en gert er ráð fyrir að stærsti hluti þess fari í birtingar á erlendum mörkuðum. Útboð fyrir birtingarhluta verkefnisins verður auglýst á vef Ríkiskaupa á næstu dögum.

Auglýst var eftir tillögum að stefnumörkun og framkvæmd verkefnisins á evrópska efnahagssvæðinu þann 2. apríl síðastliðinn. Fimmtán tilboð bárust í verkefnið. Þrettán manna valnefnd, skipuð fulltrúum ráðherra ferðamála, Samtaka ferðaþjónustunnar, Reykjavíkurborgar, markaðsstofa landshlutanna og Íslandsstofu, fór yfir tilboðin og lagði mat á þau. Ríkiskaup fór með framkvæmd útboðsins. 

Tillaga M&C Saatchi og Peel hlaut hæstu heildareinkunnina og var með hæstu einkunn í níu af ellefu hæfnisþáttum. Nú stendur yfir biðtími samkvæmt lögum um opinber innkaup. Að honum loknum kemst á bindandi samningur. Fram kemur í rökstuðningi valnefndar að innsendingin sé sterk og byggi á traustri stefnumótun. Hugmyndin sé bæði áhrifarík og nái að tengja saman ólíka þætti til að styrkja ímynd landsins. Skýr áhersla sé lögð á sjálfbærni og hugmyndin tengist vel öðrum útflutningsgreinum Íslands.

Íslandsstofa mun sjá um framkvæmd verkefnisins. 

Deila