Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
17. febrúar 2016

Ný herferð Ísland - allt árið laðar erlenda ferðamenn til landsins

Ný herferð Ísland - allt árið laðar erlenda ferðamenn til landsins
Markaðsverkefnið Ísland – allt árið fer af stað með herferð undir merkjum Inspired by Iceland sem á að stuðla að betri skilningi ferðamanna á íslenskri náttúru, menningu og sögu með örnámskeiðum fyrir ferðamenn. Herferðin kennir m.a. ábyrgari ferðahegðun.
Markaðsverkefnið Ísland – allt árið fer af stað með herferð undir merkjum Inspired by Iceland sem á að stuðla að betri skilningi ferðamanna á íslenskri náttúru, menningu og sögu með örnámskeiðum fyrir ferðamenn.
 
Í dag var kynntur nýjasti áfangi markaðsverkefnisins Ísland - allt árið. Herferðin heitir „Iceland Academy“ og er undir merkjum Inspired by Iceland. Herferðin fer formlega af stað 25. febrúar nk. Henni er ætlað að auka vitund og áhuga á Íslandi sem áfangastað ásamt því að leggja áherslu á ábyrga ferðahegðun erlendra gesta, auka öryggi þeirra og ánægju og stuðla að því að þeir fái sem mest út úr Íslandsferðinni. Herferðin kynnir fyrir ferðamönnum ýmislegt forvitnilegt í íslenskri menningu, siðum og náttúru með örnámskeiðum á vef og samfélagsmiðlum.
 
Átta íslenskir leiðbeinendur munu upplýsa fróðleiksþyrsta erlenda ferðamenn
 
Í fararbroddi herferðarinnar eru átta íslenskir leiðbeinendur en leiðtogi þeirra verður leiðsögumaðurinn Kristín Bang sem mun stýra fræðslu um ábyrga ferðamennsku. Aðrir leiðbeinendur eru Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg sem leiðbeinir um öryggismál, Ylfa Helgadóttir meðlimur íslenska kokkalandsliðsins sem fræðir um íslenska matargerð, Guðmundur Karl Jónsson umsjónarmaður skíðasvæðisins á Akureyri kynnir íslenska vetrarafþreyingu, Kamilla Ingibergsdóttir fyrrum kynningarstjóri Iceland Airwaves og núverandi starfsmaður Of Monsters and Men segir frá íslenskum hátíðum, Baldur Kristjánsson ljósmyndari sýnir erlendum gestum hvernig best er að fanga norðurljósin á mynd, Guðrún Bjarnadóttir fræðir ferðamenn um íslenskar heilsulindir og loks mun Sigríður Margrét Guðmundsdóttir eigandi Landnámsseturs fræða ferðamenn um íslenska sögu. 
 
Fyrstu fjögur námskeið „Iceland Academy“ verða sýnileg á vef Inspired By Iceland og hægt er að fylgjast með í gegnum Facebook, Twitter og Instagram. Tilvonandi ferðamönnum sem horfa á námskeiðin gefst kostur á að þreyta próf og kanna þekkingu sína á efninu. Þeir sem ljúka öllum námskeiðunum með prófi gefst svo kostur á að vinna útskriftarferð til Íslands.
 
Eftirfarandi námskeið verða í boði:
 
  • How to Avoid Hot Tub Awkardness
  • Responsible Travelling In Iceland
  • How To Eat Like An Icelander
  • Staying Safe In Iceland
  • A Guide to Winter Sports in Iceland
  • Pack Warm and Stay Happy
  • Driving in Iceland
  • Therapeutic Iceland
  • A Guide to Icelandic Festivals
  • How to Travel Further in Iceland
  • Capturing the Northern Lights
  • A Beginner’s Guide to Icelandic Sagas
     
Erlendir gestir njóti Íslandsferðarinnar betur með meiri þekkingu á aðstæðum
 
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, segir að aðaláherslan í markaðssetningu Íslands undanfarið miði að því að vekja áhuga á Íslandi utan háannar, fá fólk til þess að ferðast víðar um landið, eyða meiru og dvelja hér lengur.
 
„Markaðsstarfið hefur gengið vel fram að þessu og við eigum mjög gott samtal við ferðaþjónustuna þegar kemur að áherslum í starfinu. Við höfum unnið að herferðinni í samstarfi við þau fyrirtæki sem taka þátt í Ísland – allt árið og markaðsstofum landshlutanna og teljum að hún endurspegli vel þá umræðu sem á sér stað innan ferðaþjónustunnar. Það var skýr vilji hjá samstarfsaðilum að kominn væri tími til þess að huga einnig að jákvæðari ferðahegðun. Stærstur hluti ferðamanna vill upplifa náttúruna og við vitum öll að íslenska náttúru þarf að umgangast af virðingu og vandfærni. Við teljum að ferðamaðurinn eigi eftir að fá meira út úr ferð sinni og fara héðan ánægðari ef hann er betur upplýstur um aðstæður fyrirfram. „Iceland Academy“ er tækifæri til að kynna og vekja áhuga ferðamanna á einstökum eiginleikum Íslands og hvernig best megi njóta þeirra með öruggum og ábyrgum hætti. Við teljum að þessi nálgun eigi eftir ná vel til okkar markhóps erlendis sem eru svokallaðir “upplýstir“ ferðamenn.“
 
Hægt er að skrá sig í „Iceland Academy“ með því að heimsækja www.inspiredbyiceland.com eftir 25. febrúar.
 
Hér að neðan má sjá myndir af leiðbeinendum herferðarinnar

Deila