Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
17. október 2017

Nýtt gangtegundamyndband ýtir undir vinsældir íslenska hestsins um allan heim

Nýtt gangtegundamyndband ýtir undir vinsældir íslenska hestsins um allan heim
Horses of Iceland sendi nýlega frá sér myndband þar sem gangtegundir íslenska hestsins eru sýndar og hafa viðbrögðin við myndbandinu verið mjög góð.

Horses of Iceland sendi nýlega frá sér myndband þar sem gangtegundir íslenska hestsins eru sýndar. Í myndbandinu eru allar fimm gangtegundir hestsins sýndar á eðlilegum hraða sem og í hægri sýningu til að auðveldara sé að glöggva sig á fótaröðun hverrar gangtegundar fyrir sig.

Viðbrögðin við myndbandinu hafa verið gífurlega góð, fleiri hundruð þúsunda hafa horft á myndbandið, deilt því og tjáð sig um það. Myndbandið var birt á samfélagsmiðlum 12. október sl. og á fyrstu fjóru dögunum hafði það fengið yfir hálfa milljón áhorfa. Af þessu að dæma er mjög mikill áhugi á íslenska hestinum um allan heim.

Gangtegundamyndbandið ýtir undir eitt af helstu markmiðum verkefnisins Horses of Iceland, sem er að vekja athygli á og markaðssetja íslenska hestinn um allan heim. Verkefnið er hýst og unnið af Íslandsstofu.

Myndbandið var tekið upp í Skagafirði, í landi Bakka í Viðvíkursveit þar sem íslensk náttúra fær að njóta sín í bakgrunni. Tamningameistarinn Þórarinn Eymundsson er knapi á stóðhestinum Narra frá Vestri-Leirárgörðum. Myndbandið er framleitt af Skotta Film fyrir Horses of Iceland og grafíkin var í höndum PIPARTBWA.

Deila