Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
12. ágúst 2019

Opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA til 27. ágúst

Opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA til 27. ágúst
Nú er opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.

Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 27. ágúst 2019. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru.

Styrkir til tvenns konar verkefna

NATA auglýsir að jafnaði eftir styrkjum tvisvar á ári, í byrjun árs og í ágúst. Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna:

  • Þróunar- og markaðsverkefna í ferðaþjónustu
  • Ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna

Vakin er athygli á að stjórn NATA leggur sérstaka áherslu á umsóknir sem tengjast sjálfbærri ferðamennsku.

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu

Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.

  • Til sameiginlegra markaðssetningarverkefna.
  • Til nýsköpunar- og vöruþróunar.
  • Til þekkingarheimsókna og miðlunar gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila.
  • Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar.

Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:

  • Verkefnishugmyndar og gæða umsóknarinnar.Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
  • Nýnæmis og nýsköpunargildis verkefnisins
  • Markaðstengingar
  • Kostnaðaráætlunar og annarrar fjármögnunar
  • Samfélagslegs gildis

Styrkir vegna kynnis- og námsferða

Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði, ekki gistingu eða uppihaldi. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferðalaga milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar.

Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða:

  • Verkefnishugmynd
  • Gæði umsóknar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
  • Gagnkvæmni og tengslamyndun
  • Kostnaðaráætlun, fjármögnun

Hvar er sótt um?

Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Nánari leiðbeiningar um umsóknir á vef NATA

Opna umsóknasíðu á vef NATA

Skilafrestur

Lokafrestur til að skila umsókn vegna næstu úthlutunar er á miðnætti (GMT) 27. ágúst 2019. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 10. október 2019 og munu umsækjendur fá svar þann dag. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 10. október eru ekki styrkhæf og sama á við um ferðir sem lýkur fyrir þann tíma.

Næsti umsóknarfrestur

Um er að ræða seinni úthlutun af tveimur á árinu 2019. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar 2019 verði í ársbyrjun (janúar) 2020 en það verður auglýst sérstaklega síðar. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Birita Johansen í gegnum netfangið nata@industry.fo

Úthlutaðir styrkir

Deila