Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
23. október 2013

Saltfiskur í Barcelona

Saltfiskur í Barcelona
Íslenski básinn hefur fengið mikla athygli á sjávarútvessýningunni í Barcelona og tóku fjölmiðlar og sjónvarpsstöðvar m.a. viðtöl við spænska matreiðslumanninn Rubén Barrios sem hefur eldað á íslenska básnum.

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslenskra fyrirtækja sem framleiða og selja saltfiskafurðir á Seafood Barcelona sýningunni sem hófst í gær. Það eru 26 fyrirtæki sem hafa sameinast í að kynna íslenskar saltfiskafurðir undir kjörorðinu "Taste and share the secret of Icelandic Bacalao." Lögð er áhersla á gæði, uppruna og hreinleika í kynningunni sem og fagmennsku og færni í að viðhalda ferskleika og bragðgæðum afurðanna. Íslenska þorpið er notað sem "rödd" í kynningunni og mun Eldhúsið sem notað var í Inspired by Iceland verkefninu, verða táknmynd íslenska þorpsins.

Íslenski básinn hefur fengið mikla athygli og tóku fjölmiðlar og sjónvarpsstöðvar m.a. viðtöl við spænska matreiðslumanninn Rubén Barrios sem hefur eldað á íslenska básnum. Þá má nefna þátttöku Íslands í Master Class þar sem þorskur úr Norður Atlantshafi var kynntur af einum fulltrúa íslensku fyrirtækjanna og gestir fengu að smakka á íslenskum gæðasaltfiski. Sjávarútvegsráðherra Spánar kom í heimsókn á íslenska básinn og hreifst af Eldhúsinu og þá kom einnig sendiherra Íslands í París, Berglind Ásgeirsdóttir, á sýninguna.

Eftir sýninguna í  Barcelona mun Eldhúsið fara til Lissabon og Bilbao þar sem blaðamönnum og gestum verður boðið að smakka íslenskan saltfisk á fjölförnum stöðum. Íslenskur saltfiskur verður einnig kynntur á Ítalíu þar sem áherslan verður á  Napólí og S-Ítalíu.

Megináherslan í þessum kynningum er á vefnum, samfélagsmiðlum og viðburðum á mörkuðum. Kynningunni verður beint markvisst að blaðamönnum, matreiðslumönnun og veitingastöðum sem og innflytjendum / dreifingaraðilinum á íslenskum saltfiski.

Þátttökufyrirtækin 26 í verkefninu eru þessi: Auðbjörg, Dino, Eimskip, FISK Seafood, Fiskkaup, Fínfiskur, Golden Seafood Company, Hafnarnes VER, Hraðfrystihúsið–Gunnvör, Iceland Seafood International, Icelandic Group, J. Benediktsson, Jakob Valgeir, KG Fiskverkun, Nesfiskur, Oddi, Saltkaup, Samhentir, Samskip, Skinney–Þinganes, Sæport, Valafell, Vinnslustöðin, Vísir, Þorbjörn og Þórsberg.

Hér að neðan má sjá myndir frá Seafood Barcelona

Deila