Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
5. janúar 2022

Sendiherra Íslands í Japan til viðtals

Sendiherra Íslands í Japan til viðtals
Sendiherra Íslands í Japan verður til viðtals 12. janúar fyrir þá sem vilja ræða viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmi sendiráðsins.

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Tókýó, verður til viðtals hjá Íslandsstofu miðvikudaginn 12. janúar, fyrir hádegi. Fundirnir eru ætlaðir þeim sem vilja ræða viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál þar sem sendiherrann getur orðið að liði. Auk Japans eru umdæmislönd sendiráðsins Brúnei, Indónesía, Filippseyjar og Tímor-Leste.

Fundirnir fara fram í gegnum Teams, en einnig stendur til boða að tala við sendiherrann í síma.  

BÓKA VIÐTAL

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir, adalheidur@islandsstofa.is, eða í síma 511 4000.


Deila