Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
13. nóvember 2014

Tvö þúsund saltfiskkökur í portúgalska maga

Tvö þúsund saltfiskkökur í portúgalska maga
Dagana 5. og 6. nóvember fór fram kynning á íslenskum saltfiski í norðurhluta Portúgal en hún er liður í markaðsverkefni Íslandsstofu og Íslenskra saltfiskframleiðenda undir kjörorðinu smakkaðu og deildu (með þér) leyndarmáli íslenska saltfisksins.

Dagana 5. og 6. nóvember fór fram kynning á íslenskum saltfiski í norðurhluta Portúgal en hún er liður í markaðsverkefni Íslandsstofu og Íslenskra saltfiskframleiðenda undir kjörorðinu smakkaðu og deildu (með þér) leyndarmáli íslenska saltfisksins.

Rík hefð er fyrir saltfiskneyslu í Portúgal og er íslenski saltfiskurinn fluttur út blautverkaður og þurrkaður og fullunninn af framleiðendum í Portúgal. Margir þeirra eru með starfsemi í Gafanha da Nazaré við Aveiro þar sem haldinn var fundur með kaupendum og dreifingaraðilum á íslenskum saltfiski. Þema fundarins var gæði og nýsköpun. Að fundinum loknum var sameiginlegur hádegismatur fyrir þátttakendur þar sem íslenskur saltfiskur var í aðalhlutverki.

Daginn fyrir kynningarfundinn var almenningi í miðborg Porto boðið upp á að smakka íslenskan saltfisk matreiddan á portúgalska vísu. Fólk tók þessu framtaki vel og fóru um tvö þúsund saltfiskkökur ofan í svanga portúgalska maga. 

Portúgalir eru stærstu neytendur á saltfiski í heiminum og er neysla á saltfiski stöðug allt árið en nær þó hápunkti um jólin. Portúgal er mjög mikilvægur markaður fyrir íslenskan saltfisk en frá 2005 hefur útflutningur þangað verið á bilinu 8-12 þúsund tonn aðallega flattur saltfiskur.

Á árinu 2014 hafa 24 íslensk fyrirtæki sameinast að kynna íslenskar saltfiskafurðir í Suður Evrópu undir kjörorðinu "Taste and share the secret of Icelandic Bacalao" en verkefnið hófst 2013. Gæði og uppruni vörunnar eru meginskilaboðin og hafa viðburðir erlendis og vef- og samfélagsmiðlar m.a. verið nýttir til að ná til neytenda í löndunum þremur: Spáni, Portúgal og Ítalíu. 

Hér að neðan má sjá myndir frá Gafanha da Nazaré og Porto

Deila