Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
17. september 2012

Umræður á netinu urðu kveikjan að auglýsingaherferð

Umræður á netinu urðu kveikjan að auglýsingaherferð
Tekið verður við hugmyndum að öðru nafni fyrir Ísland sem liður í markaðsherferðinni Ísland – allt árið, eftir að umræður spunnust um það á samfélagsmiðlum verkefnisins hvort nafnið “Ísland” væri nægilega lýsandi nafn á eyjunni.

Ferðamönnum verður boðið að stinga upp á öðru nafni fyrir Ísland sem liður í markaðsherferðinni Ísland – allt árið, eftir að umræður spunnust um það á samfélagsmiðlum verkefnisins hvort “Ísland” væri nægilega lýsandi nafn á eyjunni miðað við íslenska náttúru og veðurfar. Verðlaun verða veitt fyrir sniðugasta nafnið í vor. 

Í ágúst spunnust miklar umræður um það á samfélagsmiðlum Inspired by Iceland hvort nafnið Ísland væri réttnefni, þegar litið er til fegurðar íslenskrar náttúru og veðurfars. Um 10.000 manns tóku þátt í umræðunum með einu eða öðru móti, og nokkur hundruð uppástungur bárust að meira lýsandi nafni fyrir landið.

Í ljósi þess mikla áhuga sem þetta vakti var ákveðið að blása til leiks með ferðamönnum og efna til samkeppni um sniðugasta valkostinn fyrir meira lýsandi nafn á eyjunni.

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður markaðssóknar Íslandsstofu:
„Við höfum óneitanlega orðið vör við aukinn áhuga ferðamanna á landinu. Fólk sem kemur hingað er iðulega tilbúið að segja frá landinu og deila reynslu sinni. Þegar umræður spunnust um nafnið var augljóst að fólk hafði óþrjótandi hugmyndir að nöfnum sem lýstu ekki bara landinu, heldur líka tilfinningum fólks til landsins. Í stað þess að reyna að útskýra hvernig nafnið væri tilkomið, ákváðum við að hafa gaman að þessu og fagna þessum mikla áhuga á landinu og efna til samkeppni um hugmynd að nafni sem væri lýsandi fyrir land og þjóð. Við munum svo nota bestu hugmyndirnar í kynningarstarfi í markaðsátakinu Ísland – allt árið í vetur.“

Hægt verður að setja fram tillögur og skoða þær á vef Inspired by Iceland. Þá verður komið upp bás í Leifsstöð þar sem fólk getur skilað inn hugmyndum. Við lok samkeppninnar verður blásið til hátíðarhalda þar sem vinningstillagan verður kynnt og vinningshafinn mun hljóta veglegan sess í tengslum við hið nýja nafn.

Florian Thomasson frá Þýskalandi mun birtast í auglýsingum frá Inspired by Iceland. Tillaga Florian er „Iceland is my Landofendlessskyland"

 

 

Deila