Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
4. október 2021

Vestnorden ferðakaupstefnan á Íslandi 2021

Vestnorden ferðakaupstefnan á Íslandi 2021
Búast má við um 500 gestum til landsins til að taka þátt í kaupstefnunni sem fer nú fram í 36. skipti.

Vestnorden ferðakaupstefnan hefst á morgun í Reykjanesbæ og stendur til fimmtudags. Um er að ræða stærsta viðburðinn sem er haldinn í ferðaþjónustu á Íslandi og búast má við um 500 gestum til landsins til að taka þátt í kaupstefnunni sem fer nú fram í 36. skipti. Á Vestnorden er lögð áhersla á ábyrga ferðahegðun og sjálfbærni og fellur því vel að áhersluatriðum íslenskrar ferðaþjónustu.

Ferðamálasamtök Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála, standa að Vestnorden. Löndin þrjú skipta með sér umsjón með ferðakaupstefnunni en hún er haldin annað hvert ár á Íslandi.

Vestnorden er mikilvægur vettvangur fyrir íslenska ferðaþjónustu.

„Það er ánægjulegt að sjá mikinn áhuga erlendra ferðaskipuleggjenda á að sækja Vestnorden til að stofna eða styrkja viðskiptasambönd við íslensk, grænlensk og færeysk ferðaþjónustufyrirtæki. Þessi viðburður er mikilvægur vettvangur og aðeins einu sinni í sögu Vestnorden hafa fleiri skráð sig sem er til marks um að fólk hefur trú á framtíð ferðaþjónustu í þessum löndum,” segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanessbæjar segir það mikið gleðiefni að að bjóða gesti og aðstandendur Vestnorden 2021 velkomna til Reykjanesbæjar.

„Kaupstefnan mun gefa okkur tækifæri til að sýna hvað Reykjanesbær og Reykjanesið hefur uppá að bjóða fyrir ferðamenn og aðila í ferðaþjónustu. Sem hluti af Reykjanes UNESCO Geopark, býður Reykjanesbær uppá fjölbreytta upplifun og afþreyingu hvort heldur sem er í gegnum söfn sín og menningu eða ægifagra náttúru. Við erum því full tilhlökkunar að taka á móti gestum Vestnorden 2021“.

Íslandsstofa er framkvæmdaraðili Vestnorden þegar hún er haldin hér á landi, en hún verður að þessu sinni haldin í góðu samstarfi við Reykjanesbæ, Markaðsstofu Reykjaness og aðra hagsmunaaðila.

Deila