Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
7. október 2020

Vestnorden ferðakaupstefnan í dag

Vestnorden ferðakaupstefnan í dag
Góð þátttaka er á Vestnorden ferðakaupstefnunni þrátt fyrir að kaupstefnan fari einungis fram á vefnum í ár.

Vestnorden ferðakaupstefnan er haldin miðvikudaginn 7. október. Að þessu sinni fer hún fram á vefnum. Mikill áhugi er á kaupstefnunni og eru 175 fyrirtæki skráð til leiks. Þó svo að fólk geti ekki hist í eigin persónu að þessu sinni er lögð mikil áhersla á tengslamyndun og fundi milli mögulegra viðskiptavina þar sem fyrirtæki geta viðhaldið þeim góðu samböndum sem hafa myndast í gegnum Vestnorden síðustu ár og áratugi.

Ferðamálasamtök Norður-Atlantshafsins (NATA) standa að Vestnorden en þau eru samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Ferðakaupstefnan hefur verið haldin síðan 1986 og hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustu landanna þriggja. Mörg ferðaþjónustufyrirtæki taka þátt ár eftir ár. Samhliða vaxandi áhuga ferðamanna frá löndunum þremur hafa fjölmargir nýir kaupendur sótt kaupstefnuna á undanförnum árum.

Vestnorden er mikilvægur vettvangur fyrir íslensk, færeysk og grænlensk ferðaþjónustufyrirtæki til að rækta viðskiptasambönd og stofna til nýrra að sögn Sigríðar Daggar Guðmundsdóttur, fagstjóra ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. „Á meðan Covid-19 varir er mikilvægt að fyrirtæki hugi vel að tengslanetinu. Greiningaraðilar búast við að ferðaþjónusta taki hratt við sér á næsta ári en það verður sterk samkeppni milli áfangastaða og það er ekki sjálfgefið að ferðamenn velji Ísland. Öflug viðskiptatengsl munu skipta miklu máli og flýta fyrir bata íslenskrar ferðaþjónustu.” 
Sjá einnig grein Sigríðar Daggar sem birtist á Vísi: Ísland með sterk skilaboð

Ferðakaupstefnan er haldin annað hvert ár á Íslandi og hin árin til skiptis í Færeyjum og á Grænlandi. Þetta árið var stefnan að halda Vestnorden á Reykjanesi en af augljósum ástæðum reyndist það ekki hægt. Stefnt er að því að halda Vestnorden undir venjulegum formerkjum á Reykjanesi að ári, 5.-7. október 2021, þegar aðstæður verða vonandi hagfelldari og ferðalög milli landa komin í eðlilegt horf.

Íslandsstofa er framkvæmdaraðili ferðakaupstefnunnar í samstarfi við NATA.


Deila