Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
26. janúar 2022

Viðskiptatækifæri í þróunarlöndum

Viðskiptatækifæri í þróunarlöndum
Sjóðurinn hentar fyrirtækjum í margvíslegum geirum sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum. Næsti umsóknarfrestur er 3. febrúar 2022.

Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins til verkefna í þróunarlöndum. Næsti umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 3. febrúar 2022

Sjóðurinn hentar fyrirtækjum í margvíslegum geirum sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum. Þróunarlöndin kalla sjálf eftir samstarfi við atvinnulífið til að þekking og drifkraftur atvinnulífsins nýtist þeim til framþróunar. Þegar styrkhæfni verkefna er metin er sérstaklega horft til áhrifa verkefnanna á sjálfbæra atvinnuþróun í þróunarlandinu, jákvæð umhverfisáhrif, mannréttindi og aukna atvinnuþátttöku kvenna.

Verkefni þarf að framkvæma í samvinnu við samstarfsaðila í þróunarlandi. Styrkurinn getur hæst orðið EUR 200.000 (ca. 26 milljónir ISK) á þremur árum og getur mest orðið 50% af heildarkostnaði verkefnis.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á Heimstorginu og einnig á heimasíðu sjóðsins hjá utanríkisráðuneytinu.

Nánari upplýsingar um veita Auður Edda Jökulsdóttir hjá ráðuneytinu og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir hjá Íslandsstofu.

* Mynd: World Bank Photo Collection


Deila