Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
23. febrúar 2015

Viltu bæta frammistöðu á erlendum mörkuðum?

Viltu bæta frammistöðu á erlendum mörkuðum?
Vinnustofa um kynningar á vöru og þjónustu á erlendum mörkuðum verður haldin miðvikudaginn 11. mars á Grand Hótel. Er henni ætlað að nýtast bæði fyrirtækjum sem vinna að stofnun nýrra viðskiptatengsla og þeim vilja bæta enn frekar þjónustu sína og sölutækni.

Á meðal þess sem farið verður yfir eru grunnatriði í sölu- og kynningartækni, skilningur og þekking á þörfum viðskiptavina, auk þess sem farið verður yfir mikilvægi áætlanagerðar og undirbúnings út frá viðkomandi menningarheimi.

Leiðbeinandi er Chris Bowerman, meðeigandi og stjórnandi Tripos Consultants, Notthingham á Englandi. Chris hefur 24 ára reynslu af að halda námskeið og vinnustofur fyrir fyrirtæki og stofnanir sem miða að því að efla starfsemi þeirra. Hann hefur haldið árangursrík námskeið og vinnustofur hér á landi frá árinu 2005, þar sem íslensk útflutningsfyrirtæki hafa fengið aðstoð við að þróa arðbær viðskiptasambönd og selja vörur sínar til erlendra viðskiptavina.

Vinnustofan fer fram miðvikudaginn 11. mars kl. 08:30 – 12:30 á Grand hótel Reykjavík. Aðgangseyrir er 7.900 kr og eru námskeiðsgögn innifalin í verðinu. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

Skráning fer fram á islandsstofa@islandsstofa.is

Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Nánari upplýsingar veita:

Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is og Andri Marteinsson, andri@islandsstofa.is

Skilmálar:
Þar sem um ákveðin fjölda þátttakenda er að ræða er lögð áhersla á að veita fyrirtækjum forgang á vinnustofuna. Ekki er hægt að fá endurgreitt sólarhring fyrir viðkomandi vinnustofu.

Deila