Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
6. janúar 2017

Vinnustofur í Kanada í apríl

Vinnustofur í Kanada í apríl
Íslandsstofa skipuleggur röð vinnustofa í Kanada. Heimsóttar verða borgirnar Vancouver 4. apríl, Edmonton 5. apríl, Winnipeg 6. apríl og Halifax 7. apríl.

Íslandsstofa skipuleggur röð vinnustofa í Kanada. Heimsóttar verða borgirnar Vancouver 4. apríl, Edmonton 5. apríl, Winnipeg 6. apríl og Halifax 7. apríl. Athugið breyttar dagsetningar, þessar vinnustofur voru áður áætlaðar í júní.

Á vinnustofunum gefst íslenskum fyrirtækjum í ferðaþjónustu tækifæri til að hitta ferðasöluaðila á viðkomandi svæðum og stofna til nýrra viðskiptasambanda.
Athygli er vakin á að þessar vinnustofur hafa verið mjög vel sóttar á undanförnum árum. 
 
Áhugasamir eru beðnir að fylla út meðfylgjandi skráningareyðublað og senda á netfangið margret@islandsstofa.is fyrir 30. janúar nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar umsóknarfresturinn er liðinn.
  
Nánari upplýsingar veita Margrét Helga Jóhannsdóttir, margret@islandsstofa.is og Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is.

Deila