Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
3. nóvember 2014

Vinnustofur í Suður Evrópu

Vinnustofur í Suður Evrópu
Íslandsstofa skipulagði vinnustofur fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki dagana 13.-17. október sl. á Spáni og Ítalíu.

Íslandsstofa skipulagði vinnustofur fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki dagana 13.-17. október sl. á Spáni og Ítalíu. Vinnustofurnar fóru fram í borgunum Madrid, Barcelona, Róm og Mílanó.

Mikill fjöldi spænskra og ítalskra ferðaþjónustufyrirtækja komu á vinnustofurnar og ljóst er að áhuginn á Íslandi sem ferðaáfangastað er mikill í þessum löndum.

Af Íslands hálfu tóku átta fyrirtæki þátt í vinnustofunni: Gray Line Iceland, Icelandair, Iceland Travel, Reykjavík Excursions, Snæland Travel, Special Tours, Terrra Nova Iceland og WOW Air. Íslandsstofa skipuleggur árlega fimm til sex vinnustofur ferðaþjónustuaðila til Evrópu, Norður Ameríku og Asíu.

Deila