Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
3. október 2018

Yfir 600 þátttakendur frá 30 löndum á Vestnorden á Akureyri

Yfir 600 þátttakendur frá 30 löndum á Vestnorden á Akureyri
Ferðakaupstefnan Vestnorden Travel Mart hófst í gær en hún er einn stærsti viðburður í ferðaþjónustu sem haldinn er á Íslandi.

Kaupstefnan er haldin af Ferðamálasamtökum Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.
Eliza Reid, forsetafrú og sendiherra ferðamála hjá Sameinuðu þjóðunum setti kaupstefnuna.

Á kaupstefnunni eru yfir 600 þátttakendur frá 30 löndum, þar af 70 nýir erlendir ferðasöluaðilar. Samankomin eru öll helstu ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi, auk ferðaþjónustuaðila frá Grænlandi og Færeyjum, sem kynna vöruframboð sitt fyrir öðrum ferðasöluaðilum á staðnum. Kaupstefnan býður því upp á frábært tækifæri til að kynna Ísland sem áfangastað þá tvo daga sem hún stendur yfir.

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, segir:
„Það er gott að vera hér á Norðurlandi með ferðakaupstefnuna í ár og það er hugur í öllum þátttakendum. Hér eru ferðaþjónustuaðilar hvaðanæva úr heiminum sem selja ferðir eða hafa hug á því að hefja sölu, að kynnast löndunum þremur og því sem þau hafa upp á að bjóða. Verðmæt viðskiptasambönd verða til og önnur styrkjast. Vestnorden er svo sannarlega mikilvægur vettvangur til þess að efla ferðaþjónustuna á öllum sviðum og viðhalda því sem er. Það er líka frábært að sjá hvernig ferðaþjónustan hér á Norðurlandi hefur tekið höndum saman í þessu verkefni og unnið með okkur að því að gera kaupstefnuna sem árangursríkasta.“

Í ár gafst þátttakendum í fyrsta sinn kostur á að fara í skoðunarferð hluta úr degi á meðan kaupstefnan stóð yfir. Í þeim gafst þátttakendum einstakt tækifæri á að ræða mögulegt samstarf við nýja viðskiptafélaga, á meðan Norðurland er kannað. Ferðakaupstefnan er haldin í góðu samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, Akureyrarbæ, Isavia og Air Iceland Connect.

Áherslur kaupstefnunnar í ár eru sjálfbærni og ábyrg ferðahegðun og því verður „The Icelandic Pledge“ áberandi á sýningunni. Þar eru ferðamenn hvattir til að samþykkja atriði sem stuðla að ábyrgri ferðahegðun, svo sem að bera virðingu fyrir náttúrunni, að keyra ekki utan vega, eða koma sér ekki í hættulegar aðstæður við að taka myndir. www.inspiredbyiceland.com/icelandicpledge/  


Deila